Maður les fréttir af ríkjum sem hafa sig mikið frammi á alþjóðavettvangi, en geta þó ekki talist aðhyllast mannréttindi og lýðræði eins og við þekkjum það.
Íslendingar eru mjög að vingast við Kínverja. Forseti Íslands hleður þá lofi. En þeir hafa verið í herferð gegn frændum okkar Norðmönnum vegna þess að þeir veittu þekktum kínverskum andófsmanni friðarverðlaun Nóbels.
Og nú birtast fréttir um hvernig Kínverjar hafa reynt að vinna skemmdarverk á heimsblaðinu New York Times vegna frétta sem blaðið birti um Wen Jiabo, þáverandi forsætisráðherra.
Þegar maður les svona hringja ótal viðvörunarbjöllur – hvers er að vænta í samskiptum við þetta ríki.
Svo er það Ísrael. Það er ekki nýtt að berist fréttir um mannréttindabrot úr þeim ranni.
En síðari fréttin er sérlega ógeðsleg. Þar segir að ísraelsk yfirvöld hafi með laun látið sprauta getnaðarvörn í eþíópískar konur sem hafa flutt til landsins. Fólkið sem kemur frá Eþíópíu er talið vera af gömlum stofni gyðinga – og þó er um það deilt. Þetta var gert undir því yfirskyni að verið væri að bólusetja konurnar.
Þetta er náttúrlega hreinræktaður rasismi. Það eru ekki heimildir að aðrir gyðingar sem flytja til Ísraels, til dæmis frá Bandaríkjunum eða Rússlandi hafi fengið þessa meðferð.