Aditya Chakrabortty skrifar í Guardian um ráðstefnuna World Economic Forum í Davos sem nú er að hefjast. Þar hittast þjóðarleiðtogar, 34 talsins, auk manna eins og Tonys Blair og Gordons Brown, og svo efnahagselíta og milljarðamæringar heimsins.
Greinarhöfundur nefnir að þarna séu sjö fulltrúar frá Citicorp, og sex frá hverjum eftirfarandi, Goldman Sachs, Deutsche Bank og JP Morgan.
Meðan svona ráðstefnur eru haldnar þurfi varla að spyrja hverjir hafi völdin í heiminum.
Chakrabortty segir að fundurinn sé stórkostlegt dæmi um það hvernig stjórnmálamenn og bisnesselítan segist ætla að gera eitthvað út á við, en hafi svo uppi allt aðrar ráðagerðir inn á við. Þarna eru annars vegar fundir þar sem mæta Nóbelsverðlaunahafar og kvikmyndastjörnur, og hins vegar lokaðir fundir þar sem fjármálaelítan getur tekist til óspilltra málanna að lobbíast utan í stjórnmálin.
Þar plotti hinir ofurríku um hvernig þeir geti orðið ennþá ríkari.