fbpx
Mánudagur 25.nóvember 2024
Eyjan

Silfrið: Miliband, stjórnarskrárkosningar, framboðsmál

Egill Helgason
Laugardaginn 29. september 2012 18:20

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Líkt og áður er komið fram verður einn helsti stjórnmálamaður Bretlands, David Miliband, verður gestur í Silfri Egils á sunnudag.

Miliband var utanríkisráðherra á árunum 2007 til 2010. Hann og bróðir hans Ed tókust á um formennsku í Verkamannaflokknum í september 2010 og tapaði David naumlega.

Flokksþing Verkamannaflokksins hefst einmitt í Manchester á sunnudag. Flokkurinn hefur talsvert forskot á Íhaldsflokkinn í skoðanakönnunum.

Í viðtalinu ræði ég við Miliband um stjórnmál í Evrópu og Bretlandi, niðurskurð og kreppu, en einnig ber á góma íslensk málefni, leið Íslands út úr kreppunni, Icesave og möguleg innnganga Íslands í ESB.

Í þættinum verður einnig rætt um þjóðaratkvæðagreiðsluna um tillögur Stjórnlagaráðs sem fer fram eftir 21 dag – það er ekki lengra þangað til.

Einnig verður spáð í framboðsmálin – brotthvarfi Jóhönnu Sigurðardóttur, væntanlegum formannsslag hjá Samfylkingu – hver komi þar helst til greina –  átökum innan Framsóknarflokksins og hvert sá flokkur stefni –  og baráttu um sæti hjá Sjálfstæðisflokknum, ekki síst í Reykjavík.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Arnar Þór Jónsson: Lokum stofnunum og segjum upp þeim sem ekki sinna sínu starfi

Arnar Þór Jónsson: Lokum stofnunum og segjum upp þeim sem ekki sinna sínu starfi
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Stjórnarmyndun eftir kosningar: Framsókn mögulega í ríkisstjórn – afdrif Ásmundar gætu gefið tóninn

Stjórnarmyndun eftir kosningar: Framsókn mögulega í ríkisstjórn – afdrif Ásmundar gætu gefið tóninn
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Ræðum ESB!

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Ræðum ESB!
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Sér íslenskir skattar og yndi stjórnlyndra flokka

Þorsteinn Pálsson skrifar: Sér íslenskir skattar og yndi stjórnlyndra flokka