Sú breyting verður á Kiljunni þegar hún fer í loftið innan skamms að lesendum þáttarins fjölgar umtalsvert.
Í hópinn hafa bæst Eiríkur Guðmundsson, Fríða Björk Ingvarsdóttir, Friðrika Benónýs, Þröstur Helgason og Sigurður G. Valgeirsson, en Kolbrún Bergþórsdóttir verður áfram. Páll Baldvin Baldvinsson hverfur á braut – og er auðvitað söknuður að honum.