Ögmundur Jónasson hefur sérstakt lag á að dramatísera hlutina. Fólk sem lætur svona er stundum kallað dramadrottningar. En þá fer maður að velta fyrir sér til hverra hann er að tala.
Ögmundur segir að ESB umsókn hafi rifið samfélagið á hol.
Nú má vel vera að þessi umsókn hafi leikið flokkinn hans Ögmundar grátt, jafnvel rifið einhvern hluta hans „á hol“. Svo er hópur manna innan Sjálfstæðisflokksins sem er alveg að fara á límingunum vegna þessa. Ég er ekki viss um að hægt sé að yfirfæra það á „samfélagið“.
Ég verð að segja eins og er að flestir sem ég þekki eru sallarólegir yfir þessu – og eru alveg til í að sjá bara hvernig málin þróast.
Og það held ég líka að Ögmundur ofmeti hversu Evrópusambandinu sé í mun að fá Ísland í sínar raðir. Það er ágætlega orðað í frétt þar sem segir að Evrópusambandið hafi ekki sótt um að Ísland yrði aðili. Af mörgum málum sem þar herja á er aðild Íslands neðarlega á blaði – enda er til dæmis sama og ekkert um hana fjallað í erlendum fjölmiðlum.