Ég lagði orð í belg um uppbyggingu á reitnum milli Ingólfstorgs, Vallarstrætis og Fógetagarðs.
Ég fékk nokkur viðbrögð – og einu þeirra svaraði ég um það bil með þessum hætti:
„Á svæðinu sem um ræðir er varla að finna verslunar eða veitingarými á jarðhæð eða neitt slíkt. Það er ekkert sem laðar fólk að. Mest af þessu stendur autt – og milli Austurvallar og Ingólfstorgs og Ingólfstorgs og Fógetagarðs liggja pissusund – nánast eins og opnir útikamrar. „