„Það eru íslensk stjórnvöld sem buðu mér að fjárfesta,“ segir Huang Nubo í viðtali við Bloomberg fréttaveituna.
Huang hefur gefið alls konar yfirlýsingar og ekki alltaf að marka þær.
En það væri samt forvitnilegt að vita hvað er hæft í þessu, hver gæti hafa boðið honum að fjárfesta hér?
Hvað á hann við þegar hann talar um „íslensk stjórnvöld“?