Málefni norðurslóða verða í brennidepli í Silfri Egils á sunnudag. Við fjöllum um togstreituna um auðæfin í Norður-Íshafinu og hættunna sem er fólgin í eftirsókninni eftir þeim.
Eftir því sem ísinn hopar koma í ljós nýjar hættur. Til dæmis eru stór ferðamannaskip sífellt að færa sig norðar – ef eitthvað kemur fyrir er mjög vont um björgun og lítil aðstaða til aðhlynningar. Við gætum horft upp á nýtt Titanic-slys, kannski ennþá verra.
Við skoðum einnig stöðu Grænlands, en þar er að finna olíu og margvíslega málma. Margt bendir til þess að Grænlendingar verði brátt ein ríkasta þjóð í heimi. Stórveldi keppast um að bera víurnar í Grænlendinga. Stjórnmálastéttin þar er fámenn, innan við fimmtíu manns, og byggðirnar eru dreifðar. Hvernig tekst Grænlendingum að höndla þessa ásókn?
Michel Rocard, fyrrverandi forsætisráðherra Frakklands og einn gáfaðasti stjórnmálamaður Evrópu síðustu áratugina er gestur í þættinum. Hann er sérlegur sendiherra Frakklands sem fer með málefni heimskautanna.. Rocard mun líka flytja eldskarpa greiningu sína á efnahagsástandinu í heiminum. Annar sérfræðingur er Damien Degeorges, stjórnmálafræðingur sem hefur verið með annan fótinn á Grænlandi síðustu tíu árin.
Valgarður Guðjónsson kemur í þáttinn, hann er hugbúnaðarsérfræðingur og söngvari Fræbblanna og hefur meðal annars bloggað hér á Eyjunni. Hann leggur orð í belg um þriðju spurninguna í þjóðaratkvæðagreiðslunni um tillögur Stjórnlagaráðs, þá sem fjallar um þjóðkirkjuna.
Í þættinum fjöllum við líka um mál sem eru efst á baugi þessa vikuna: Orkuveituskýrsluna, þjóðaratkvæðagreiðsluna– og jafnvel friðarverðlaunin sem Evrópusambandinu voru veitt.