Það er rétt hjá hollenskum evrópuþingmanni að það er óráðlegt að nota dómstóla til að refsa stjórnmálamönnum fyrir atburði eins og íslenska bankahrunið. Stjórnmálamenn taka vondar og vitlausar ákvarðanir – og þeir geta líka bakað tjón með því að gera ekki neitt. En að framkvæma eitthvað með glæpsamlegum ásetningi er annað.
Kjósendur eiga að sjá um að fella misheppnaða stjórnmálamenn í lýðræðisríki, önnur refsing sem þeir uppskera er að þeir hljóta vanþóknun samborgara sinna. Reyndar sagði spakur maður eitt sinn: All political lives end in failure.
Þekktur stjórnmálaheimspekingur, Bernard Manin, prófessor við New York háskóla, var í viðtali í Silfri Egils um þetta síðastliðið vor. Hann varaði við að rugla saman pólitískri ábyrgðarskyldu og glæpsamlegri ábygðarskyldu þar sem dómskerfinu er beitt.
Niðurstaða landsdómsmálsins speglaði líka óvissu réttarins sjálfs um þetta – Geir var sakfelldur vegna eins ákæruliðs og ekki gerð refsing.
Reynslan af réttarhaldinu var vond, en fordæmið er auðvitað þarna – og Manin telur það háskalegt.
Viðtalið við Manin má sjá með því að smella hérna.