Veðmálastofan Ladbrokes telur líklegast að japanski rithöfundurinn Haruki Murakami fái Nóbelsverðlaunin í bókmenntum í ár. Murakami er höfundur fjölda bóka, sumar hafa verið þýddar á íslensku, en nýjasta verk hans er mikill doðrantur sem nefnist IQ84. Ég skrifaði um þessa bók í vetur, það er eins og maður stígi inn í annarlegan heim sem erfitt er að slíta sig frá.
Murakami er með líkurnar 10/1 hjá Ladbrokes. Í öðru sæti er Mo Yan frá Kína, í þiðja sæti hollenski höfundurinn Cees Nooteboom, en í fjórða sæti Ismail Kadare frá Albaníu. Í því fimmta er svo skáldið Adonis frá Sýrlandi.
Þetta eru allt mjög verðugir verðlaunahafar– Kadare er í sérstöku uppáhaldi hjá mér – en neðar á listanum koma höfundar eins og Philip Roth, Cormac McCarthy, Amos Oz, Ngugi wa Thiogo, Umberto Eco – og Bob Dylan.
Enn neðar eru höfundar sem oft hafa verið nefndir, en fara kannski að komast á síðasta snúning með að fá verðlaunin, eins og til dæmis Milan Kundera, Michel Tournier, Jevgení Jevtushenkó, Claudio Magris og Maya Angelou.
Svo fer þetta alltaf einhvern veginn. Þeir voru ekki margir sem bjuggust við að Tomas Tranströmer fengi verðlaunin í fyrra.
Hin skemmtilega Sinfonietta eftir tékkneska tónskáldið Leos Janacek hljómar í upphafi bókar Murakamis, 1Q84. Þar eru líka tveir mánar á lofti.