Ýmsir eru að hyggja á kombakk á Íslandi.
Existabræður vilja kaupa aftur Bakkavör og þá virðist ekki skorta peninga – en aðrir spyrja, hvernig í ósköpunum eiga þeir fé, menn sem skilja eftir sviðna jörð á Íslandi.
Og svo er það kombakk Jóns Ásgeirs. Fyrir einstaka velvild (og góðar afskriftir) hefur honum reyndar tekist að halda eign sinni á stærsta fjölmiðlafyrirtæki landsins. Reksturinn gengur ekki sérlega vel – en þó er næg framlegð til að kaupa dýra lúxusbifreið handa Jóni.
Hann er svo að koma aftur með nýja sportvöruverslun í Smáranum og svo útibú Iceland-keðjunnar, og ekki verður vart við annað en að kaupóðir Íslendingar fagni þessu.