Þetta er einhver skemmtilegasta fótboltamynd sem maður hefur séð. G-8 leiðtogarnir eru að horfa á úrslitaleik Chelsea og Bayern München í Meistaradeild Evrópu.
David Cameron fagnar ákaft, Chelsea er sennilega að skora, Barack Obama brosir og virðist nokkuð ánægður, Angela Merkel er mjög þung á svip, en François Hollande lítur út eins og hann hafi sáralítinn áhuga á þessu.