fbpx
Laugardagur 27.júlí 2024
Eyjan

Útrásargrúpía

Egill Helgason
Fimmtudaginn 28. febrúar 2008 10:27

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hér talar ein af grúpíum útrásarinnar. Fyrrum ritstjóri Markaðarins, viðskiptaútgáfu Fréttablaðsins, sem flutti halleljújafréttir af íslenskum viðskiptasnillingum. Aldrei örlaði á gagnrýnni hugsun í Markaðnum. Þeir sem gagnrýndu óhóf útrásarvíkinganna fengu þá einkunn að þeir væru hallærislegir og öfundsjúkir. Það væri þeirra mál hvernig þeir eyddu peningunum sínum.

Það var ekki alvarlegt mál þegar gengi fyrirtækja var stanslaust kjaftað upp í Markaðnum – og líka í sérstökum fréttaaukum á Stöð 2 þar sem Hafliði var fremstur í flokki – en síðan þegar kemur fram almennur borgari úti í bæ og gagnrýnir klabbið, þá er það hið mesta alvörumál.

Þá eru fjölmiðlar að bregðast samkvæmt Hafliða.

Síðar fór Hafliði til starfa hjá REI og var þar í hópi manna sem áttu að fá feita kaupréttarsamninga á síðustu augnablikum útrásarinnar – þegar þeir sáu að ekki var annað eftir en að reyna að seilast í sameiginlegar auðlindir landsmanna.

En við þurfum svosem ekki að horfa lengra en til fyrrverandi yfirboðara Hafliða, Jóns Ásgeirs Jóhannessonar – sem hefur sjálfur sagt að bankarnir séu svo gott sem gjaldþrota. Annar mælikvarði á stöðuna eru svo vangaveltur um að ríkið þurfi að ef til vill að koma bönkunum til bjargar.

Hér eru til glöggvunar nýjar upplýsingar um skuldatryggingarálag íslensku bankanna.

image003.jpg

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

„Óþekkt og almennt slugs orðið hluti af mannréttindum barna”

„Óþekkt og almennt slugs orðið hluti af mannréttindum barna”
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Arnar Þór íhugar að stofna nýjan stjórnmálaflokk

Arnar Þór íhugar að stofna nýjan stjórnmálaflokk
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Ný-mjór

Óttar Guðmundsson skrifar: Ný-mjór
Eyjan
Fyrir 1 viku

Lindarhvoll: Milljónir í stjórnarlaun en engir stjórnarfundir – óheyrilegur lögfræðikostnaður en engar tímaskýrslur

Lindarhvoll: Milljónir í stjórnarlaun en engir stjórnarfundir – óheyrilegur lögfræðikostnaður en engar tímaskýrslur
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Mjúk lending að hætti AGS – vaxtalækkun eftir ár, kannski

Svarthöfði skrifar: Mjúk lending að hætti AGS – vaxtalækkun eftir ár, kannski
Eyjan
Fyrir 1 viku

Borgin heldur áformum um flugvöll í Hvassahrauni til streitu og Njáll Trausti furðu lostinn – „Enginn pólitíkus á íslandi er að fara að skrifa upp á það“

Borgin heldur áformum um flugvöll í Hvassahrauni til streitu og Njáll Trausti furðu lostinn – „Enginn pólitíkus á íslandi er að fara að skrifa upp á það“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jón Sigurður skrifar – Farsælast að vera fullkomlega sannfærður um eigin ranghugmyndir

Jón Sigurður skrifar – Farsælast að vera fullkomlega sannfærður um eigin ranghugmyndir
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Einstaklingshyggjan hefur rænt okkur vitinu

Sigmundur Ernir skrifar: Einstaklingshyggjan hefur rænt okkur vitinu