Vísir.is er enn að velta fyrir sér bílamálum útvarpsstjóra. Kemst að því að 72 greiðendur afnotagjalds þurfi til að standa straum af honum.
Í framhaldi af því má benda á að líklega þarf um 750 áskrifendur Stöðvar 2 til að standa straum af mánaðarlaunum forstjóra 365 – ef rétt er farið með laun hans í tekjublöðum Frjálsrar verslunar og Mannlífs.