Ólafur Ragnar Grímsson forseti fer í opinbera heimsókn til Rúmeníu á næstunni. Í för með honum verður meðal annars gamall fjandvinur hans úr Alþýðubandalaginu Svavar Gestsson – sem er sendiherra Íslands í Rúmeníu, búsettur í Kaupmannahöfn.
Þetta hlýtur að teljast skemmtileg tilviljun. Tveir gamlir sósíalistar og ritstjórar Þjóðviljans að rifja upp gömul kynni í forðum verkamannaparadísinni við Svartahaf.