Þessi ummæli Geirs Jóns hafa aldeilis vakið mikinn hita á Moggablogginu. Skömmunum rignir yfir lögregluþjóninn hávaxna.
En auðvitað er þetta rétt hjá honum eins langt og það nær. Ef fólk tæki trú myndi það sjálfsagt drekka og dópa minna og þarafleiðandi gera minna af því að slást, brjóta flöskur eða pissa utan í hús.
Það gefur auga leið.
Er ekki um það bil það eina sem heittrúuðum múslimum er hrósað fyrir hvað þeir reyna að vera ónæmir fyrir neyslusamfélaginu og ruglinu í því?