Carinthia hérað heitir nú eiginlega Kärnten á máli innfæddra. En íbúar þar eru bæði kaþólskir og íhaldssamir og vilja sjálfsagt ekki moskur.
Einu sinni vann ég á blaði með manni sem þýddi langa grein frá Reuters um mafíuna í Nepal. Mafían hélt íbúum í þessu afskekkta fjallalandi í heljargreipum.
Þegar nánar var að gáð stóð Naples í fréttaskeytinu. Það er enska heitið á ítölsku borginni Napólí.