Hvað er að mönnunum í einkennisbúningunum?
Til hvers að vera að skipta sér af þessum mótmælendum, hvort sem það er í Kringlunni eða á Snorrabrautinni?
Mótmælin eru kannski kjánaleg, en það er ekki glæpsamlegt að vera kjáni.
Hvernig bregðast þeir við ef mótmælendurnir verða aðeins fleiri og aðeins æstari? Verður þá táragasið tekið fram?
Er þetta ekki bara enn ein sönnun þess að það eru heimskingjar sem stjórna lögreglunni á Íslandi?