fbpx
Laugardagur 20.júlí 2024
Eyjan

Grunnnet, gamaldags skipulag, kosningablogg, Ebbi Sig

Egill Helgason
Miðvikudaginn 21. mars 2007 12:16

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Míla heitir fyrirtæki sem hefur verið stofnað um rekstur grunnets Símans. Hefði kannski verið nær að láta það heita Kílómeter – mílur eru okkur Íslendingum framandi. Þetta er hið sama grunnet og ómögulegt var að skilja frá Símanum þegar hann var seldur. Maður skyldi varast að trúa öllu sem sagt er í pólitíkinni.

Aðskilnaðurinn er náttúrlega klassísk viðskiptabrella til að láta afkomutölur Símans – dýrasta símafyrirtækis í heimi – líta betur út. Kaupendur fyrirtækisins töldu sig hafa vilyrði fyrir því að Orkuveita Reykjavíkur keypti grunnnetið – en sú von gufaði upp þegar Guðlaugur Þór Þórðarson tók við stjórnarformennsku í Orkuveitunni. Því sitja þeir uppi með þessa starfsemi sem fylgja kvaðir um að halda uppi fjarskiptaþjónustu um allt land. En einokunin er sú sama og áður – við höfum fundið fyrir því hér á Stöð 2 að taxtarnir eru núorðið svo háir svo háir að við getum varla látið okkur dreyma um að hafa mann í mynd frá Akureyri.

— — —

Er ekki framtíðarsýn hinnar nýju borgarstjórnar frekar gamaldags? Stóraukin byggð í sérbýli – og það alla leið upp við Úlfarsfell? Man ég vitlaust eða lagði ekki Gísli Marteinn til að frekari framkvæmdir við Úlfarsfell yrðu blásnar af?Með þessu móti heldur byggðin heldur áfram að dreifast upp um fjöll og firnindi með tilheyrandi bílaumferð, mengun og óhagræði. Það er gamaldags. Og um Vatnsmýrina er engin svör að hafa.

Það er kraftur í Vilhjálmi Þ. og brosið er ekki farið af honum síðan í kosningunum. Ég hef annars verið þeirrar skoðunar að það skipti litlu hver stjórnar borginni.Þetta hefur mestanpart verið sama tóbakið og verður það áfram.

— — —

Það er áberandi núna fyrir kosningarnar hversu mikið af bloggurum er að taka þátt í einhvers konar spuna – að koma einhverju á flot eða setja fram túlkun á atburðum sem er stjórnmálaflokkunum þóknanleg. Það þyrfti einhvern veginn að flokka þá sérstaklega sem eru að blogga í þágu flokkanna. Þá er auðveldara að ignorera þá.

— — —

Nú er talað um að reisa styttu af Guðmundi jaka í Breiðholti. En hvað þá með Ebba Sig, gamla dagsbrúnarforingjann, sem var svo mikill sósíalisti að hann bjó í síðasta torfbænum í Reykjavík – af tómri verkalýðshugsjón að ég best veit. Var það ekki Ebbi sem samdi við Bjarna Ben um byggingu Breiðholtsins eftir að borgarstjórn Sjálfstæðisflokksins hafði staðið fyrir því áratugum saman að helst enginn fengi húsnæði nema hann væri í Flokknum?

Það væri kannski hægt að hafa þá saman í styttu – svona eins og Marx og Engels í sósíalistaríkjunum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Forsætisráðherra Grænlands heimsótti íslensku gullvinnsluna

Forsætisráðherra Grænlands heimsótti íslensku gullvinnsluna
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Iðjulaus Brynjar fer í búðina oft á dag – Þetta er ástæðan

Iðjulaus Brynjar fer í búðina oft á dag – Þetta er ástæðan
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Gott að vita að stóru málin eru í lagi – lofsverð framsýni utanríkisráðherra

Svarthöfði skrifar: Gott að vita að stóru málin eru í lagi – lofsverð framsýni utanríkisráðherra
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ragnar Þór harðorður í garð stjórnmálamanna sem reyni að gera PISA að kynjamáli – „Harðsvíruð tilraun til að drepa málinu á dreif“

Ragnar Þór harðorður í garð stjórnmálamanna sem reyni að gera PISA að kynjamáli – „Harðsvíruð tilraun til að drepa málinu á dreif“