fbpx
Laugardagur 20.júlí 2024
Eyjan

Óboðlegar skoðanakannanir

Egill Helgason
Þriðjudaginn 6. febrúar 2007 12:28

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Skoðanakönnun sem Blaðið birtir í morgun byggir á um það bil 300 manns. Úrtakið í könnuninni er 750. Svarhlutfallið er 88 prósent. Af þeim taka 53 prósent afstöðu. Þetta er ekkert til að byggja neina umræðu á. Enda virðist sumt í könnuninni vera alveg út úr kortinu – til dæmis 45,4 prósenta fylgi Sjálfstæðisflokksins.

Er ekki ástæða til að biðja þá sem gera skoðanakannanir að vanda sig, eða sleppa því ella? Það eru að koma kosningar – og á þeim tíma er viss ábyrgðarhlutur að framkvæma skoðanakannanir. Því þær eru að vissu leyti skoðanamótandi. Sjálfur er ég nokkuð hrifinn af þeirri hugmynd að banna birtingu skoðanakannana síðustu vikuna fyrir kosningar.

Menn hljóta líka að gera kröfu um að vinnubrögðin séu almennileg, ekki bara hippsum happs. Meðan þau eru ekki betri lætur maður sér nægja að taka mark á könnunum Gallup – í nýbirtri könnun þaðan voru niðurstöðurnar mjög ólíkar því sem er hjá Blaðinu.

Svo eru fengnir lærðir stjórnmálafræðingar til að kommentera á þessar niðurstöður – til að ljá þessu einhverja vigt. Ég veit ekki hvað þeir segja við blaðamennina, en eftir þeim eru prentuð ummæli sem eiga að gefa til kynna að mikið sé að marka þetta allt saman. En vegur þessara fræðimanna eykst ekki við þetta.

Maður vonast til að fá almennilegar skoðanakannanir fyrir kosningar, ekki rusl eins og þetta og það sem kemur frá batteríi sem kallar sig Púlsinn. Kjósendur eiga betra skilið og líka stjórnmálamennirnir. Að ógleymdu lýðræðinu. Þetta er ekki boðlegt. Þegar dregur nær kosningum eru skoðanakannanir ekki samkvæmisleikur heldur fúlasta alvara.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Björn Jón skrifar: Ráðamenn sem hossa sjálfum sér

Björn Jón skrifar: Ráðamenn sem hossa sjálfum sér
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Jón Sigurður skrifar – Farsælast að vera fullkomlega sannfærður um eigin ranghugmyndir

Jón Sigurður skrifar – Farsælast að vera fullkomlega sannfærður um eigin ranghugmyndir
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ragnar Þór segir þingmann Framsóknarflokksins staðfesta spillingu í landbúnaði – „Allt í boði spilltra stjórnmála“

Ragnar Þór segir þingmann Framsóknarflokksins staðfesta spillingu í landbúnaði – „Allt í boði spilltra stjórnmála“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Ríkisútvarpið telst trauðla menningarstofnun

Björn Jón skrifar: Ríkisútvarpið telst trauðla menningarstofnun