fbpx
Laugardagur 20.júlí 2024
Eyjan

Baugsmálið, Króníkan, klámþing og femínistar

Egill Helgason
Fimmtudaginn 15. febrúar 2007 20:50

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Baugsmálið er farið að minna mig á leikrit eftir Harold Pinter. Pinter samdi verk þar sem allir tala í kross, enginn skilur neinn, öll samskipti milli fólks eru meira eða minna markleysa. Það er einkennileg upplifun að horfa á leikrit eins og Afmælisveisluna eða Húsvörðinn.

Nú gæti eitthvert leikritaskáldið tekið sig til og samið verk upp úr samskiptum þeirra Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og Sigurðar Tómasar Magnússonar í réttarsal. Höfundurinn þyrfti ekki annað en gulan penna til að strika yfir staðina sem eru mest absúrd. Svo yrði verkið sett upp í Þjóðleikhúsinu og gagnrýnendur myndu vera samdóma um að það væri pintereskt.

— — —

Þegar ég vann á Helgarpóstinum sællar minningar stóð hann yfirleitt ekki undir nema fimm skrifandi starfsmönnum, tveimur ritstjórum og þremur blaðamönnum. Samt voru oft áhöld um hvort maður fengi útborgað. Þegar áraði sérstaklega vel var bætt við einum blaðamanni – einu sinni tveimur en útgáfan reis ekki undir því.

Af þessum sökum hef ég pínulitlar efasemdir um Króníkuna, nýja blaðið sem Sigríður Dögg Auðunsdóttir er að ritstýra. Ég keypti blaðið í dag í Melabúðinni. Fannst það ágætt – en samt dálítið bragðdauft. Held að þurfi að gefa dálítið í ef þetta á að standa undir þeim fjölda blaðamanna sem mér skilst að vinni við blaðið.

Annars er nokkuð um auglýsingar í blaðinu. Það voru yfirleitt aldrei neinar auglýsingar í Helgarpóstinum. Í mesta lagi frá einhverjum sjoppum. Ef svona blað á að rísa undir nafni þarf það helst að eignast marga óvini – sem veldur því að auglýsendur hlaupa burt í ofboði.

— — —

Nú komast femínistar á Íslandi í feitt. Heilt klámþing stendur fyrir dyrum á Hótel Sögu. Jafnvel í bígerð að taka hér upp klámmyndir. Ég verð fyrir vonbrigðum með femínistana ef þeim tekst ekki að flæma þennan óþjóðalýð úr landinu. Þykist reyndar viss um að þeir geri það. Ísland er að sumu leyti púritanískt land – meðfram afar frjálslegu viðhorfi til kynlífs ungmenna og utan hjónabands – það á eftir að koma dónunum á óvart hvað verða mikil vandræði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 1 viku

Ragnar Þór harðorður í garð stjórnmálamanna sem reyni að gera PISA að kynjamáli – „Harðsvíruð tilraun til að drepa málinu á dreif“

Ragnar Þór harðorður í garð stjórnmálamanna sem reyni að gera PISA að kynjamáli – „Harðsvíruð tilraun til að drepa málinu á dreif“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sigrún og Andrea í framkvæmdastjórn Coca-Cola á Íslandi

Sigrún og Andrea í framkvæmdastjórn Coca-Cola á Íslandi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur
Eyjan
Fyrir 1 viku

Helen skrifar: Uppreisnarhaf íslenskunnar

Helen skrifar: Uppreisnarhaf íslenskunnar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ragnar Þór segir þingmann Framsóknarflokksins staðfesta spillingu í landbúnaði – „Allt í boði spilltra stjórnmála“

Ragnar Þór segir þingmann Framsóknarflokksins staðfesta spillingu í landbúnaði – „Allt í boði spilltra stjórnmála“