Reykjavik Energy Invest notar sama lógó og Orkuveita Reykjavíkur.
Á vef fyrirtækisins stendur að Reykjavik Energy Invest reki hitaveitur bæði á Íslandi og erlendis.
Þar er meðal annars nefnd Nesjavallavirkjun og Hellisheiðarvirkjun.
Ég sem hélt að þessar virkjanir væru alfarið í eigu borgarbúa í gegnum eignarhaldið á Orkuveitu Reykjavíkur. Borgarbúar eiga svo líklega aftur hlut í REI – eða það skyldi maður halda.
Nema sé þegar búið að einkavæða draslið?