Eitt sinn var talað um villutrúarmenn. Svo komu endurskoðunarsinnar og þóttu ekki síður slæmir. Nú er talað um afneitunarsinna.
Það eru þeir sem gleypa ekki hráan allan áróðurinn um loftslagsbreytingar, afleiðingar þeirra og aðferðir við að takast á við þær.
Sjá stríðsfyrirsögn í Morgunblaðinu þar sem stendur Fljótum að feigðarósi og hugsa – getur þetta verið?
Mér finnst mér reyndar gert aðeins of hátt undir höfði með þessu. Maður slæst bara milli öfganna – er kannski búinn að sjá nógu margar heimsendaspár til að vera dálítið á verði.
Þetta litla próf er líka áhugavert.