16. nóvember er 200 ára afmæli Jónasar Hallgrímssonar. Maður vonar að okkur beri gæfa til að hafa þetta ekki alltof leiðinlegt – því leiðinlegur er Jónas ekki.
Á tvöhundruð ára afmæli H.C. Andersen héldu Danir mikla hátíð og buðu Tinu Turner og nokkrum strákahljómsveitum að syngja. Það var allt heldur smekklaust. Eftir þessa hátíð sitja Danir uppi með mörg hundruð ára birgðir af Andersen minjagripum.
Hér hefur engum dottið í hug að biðja Britney Spears eða Beyoncé að syngja á Jónasarári.
En mér skilst að standi til að halda afmælishátíð að kvöldi hins sextánda í Þjóðleikhúsinu. Einhvern veginn óttast maður að það verði dálítil þyngsli.
Annars er merkilegt til þess að hugsa að annar íslenskur höfundur á líka afmæli þennan dag og hann er raunar miklu frægari út um veröldina en Jónas. Þetta er pater Jón Sveinsson – Nonni – en hann fæddist nákvæmlega fimmtíu árum eftir Jónasi, upp á dag, og á svipuðum slóðum – Jónas var úr Öxnadalnum eins og frægt er en Nonni fæddist á Möðruvöllum í Hörgárdal.
Nonni var á sínum tíma lesinn víða um lönd og var kannski frægasti Íslendingurinn á sínum tíma. Bækur hans virka kannski gamaldags núorðið en þær eru hugljúfar og þekkilegar.
Það var svo mun síðar að sjarmörinn Garðar Thor Cortes lék Nonna í sjónvarpsmynd.