Íslendingar hafa löngum verið illa haldnir af því sem má kalla aumingjadýrkun. Bókmenntir okkar eru gegnsýrðar af þessu. Nú er rætt um rónann sem gerði hróp að borgarstjórnarmönnum á Tjarnarbakkanum í gær.
Það þarf helst að gera eitthvað fyrir hann. Samanber til dæmis þetta. Viðbrögðin eru eitthvað á þessa leið:
Er það nema von – það er svo illa farið með greyið.
En svo er auðvitað til einfaldari lausn á vanda mannsins – að hann hætti einfaldlega að sukka og fái sér vinnu.