Við töluðum Philip Roth, Milan Kundera og Claudio Magris í Kiljunni í gærkvöldi.
Líka Bob Dylan.
Ég man ekki hvort við nefndum Margaret Atwood. Hún var allavega á blaðinu hjá mér.
Svo er það Doris Lessing sem fær Nóbelinn. Við minntumst ekki á hana.
En við erum víst ekki þau fyrstu sem fara flatt á því að geta í hina órannsakanlegu vegi akademíunnar.
Notum það sem afsökun.
Lessing var mikið í tísku fyrir svona tuttugu árum. Þá minnir mig að einhverjar bóka hennar hafi verið þýddar á íslensku. En það hefur lítið verið talað um hana síðustu árin. Nú breytist það – slík eru áhrif Nóbelsverðlaunanna.