fbpx
Miðvikudagur 24.júlí 2024
Eyjan

Sprengingar í borgarstjórn

Egill Helgason
Mánudaginn 8. október 2007 07:43

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í ágætri fréttaskýringu Péturs Blöndal í Morgunblaðinu í morgun segir frá því að innan borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins hafi jafnvel verið uppi hugmyndir um að slíta samstarfinu við Framsóknarflokkinn vegna deilnanna um sameiningu Reykjavik Energy Invest og Geysir Green Energy.

Það er ekki ofmælt að allt hafi sprungið í loft upp í borgarstjórninni. Segir í Morgunblaðinu að borgarfulltrúum hafi fundist kynning Guðmundar Þóroddssonar, forstjóra REI, á málinu vera „lítillækkandi“.

Borgarfulltrúunum var smalað á fund á þriðjudagskvöldi í stöðvarstjórahúsinu í Elliðaárdalnum og á enginn að hafa vitað tilefnið. Þar var þeim stillt upp fyrir orðnum hlut. Fyrirsögnin á greininni í Mogganum er svohljóðandi: „Átti að vaða yfir okkur“.

Athygli vakti hversu harðorðar bæði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Valgerður Sverrisdóttir voru um málið í Silfri mínu í gær. Þorgerður sagði að kaupréttarsamningarnir í tengslum við sameininguna væru „fásinna“. Valgerður nefndi græðgi í þessu sambandi.

En borgarstjórnin leikur semsagt á reiðiskjálfi. Nú virðist pólitísk framtíð Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar og Björns Inga Hrafnssonar vera í uppnámi.

Svo má spyrja hvers vegna borgarstjórnarflokkur sjálfstæðismanna horfir til Vinstri grænna um samstarf? Einhver hefði haldið að væri nær að leita til Samfylkingarinnar eftir mynstrinu sem er í ríkisstjórn?

Eða hvað segir Dagur?

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Bandarísk stjórnmál: Biden vill koma böndum á Hæstarétt Bandaríkjanna

Bandarísk stjórnmál: Biden vill koma böndum á Hæstarétt Bandaríkjanna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Hildur hnyklar brýnnar í áframhaldandi ritdeilu – „Ég trúi varla að ég þurfi að rita enn eina grein­ina“

Hildur hnyklar brýnnar í áframhaldandi ritdeilu – „Ég trúi varla að ég þurfi að rita enn eina grein­ina“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur