Ég er KR-ingur, fæddur og uppalinn í Vesturbænum, mun alltaf halda með KR, en bý nú um það bil þrjátíu metra frá styttunni af Séra Friðrik og álíka langt frá gömlu heimkynnum KFUM við Amtmannsstíg.
Svo ég hlýt að fagna því ef Valur verður Íslandsmeistari í fótbolta.
Já, það geri ég.
Svo er annað mál að þjálfarinn sem er að ná svo góðum árangri með Val er uppalinn sem KR-ingur, gerði liðið að Íslandsmeisturum tvívegis, en var svo rekinn. Aðalmaðurinn í spili Vals var líka í KR árum saman.
Hví voru þeir látnir fara úr Frostaskjólinu?