Þetta er bjánalegt. Væri ekki hugsanlegt að maðurinn – sem vissulega er ekki geðslegur – gæti lært eitthvað af því að koma á ground zero? Jafnvel orðið fyrir hugljómun? Ef einhver hefur gott af því að sjá þennan vettvang mannvonsku og ofstækis er það einmitt hann.
Ekki voru það Íranir sem stóðu að baki árásinni á tvíburaturnana.
Síðar mætti svo reyna að bjóða honum til Auschwitz.
Það er mun betri hugmynd að leiða hann um þessa staði en að sprengja upp Íran.