Þetta held ég að séu mistök. Þóra Kristín er einhver besta frétta- og blaðakona landsins. Það veit ég eftir að hafa starfað með henni gegnum árin. Hún er vel að sér um pólitíkina og þjóðlífið – nokkuð sem blaðamaður nær ekki nema með margra ára reynslu. Maður þjálfar ekki einhvern nýgræðing upp í að taka stöðu konu eins og Þóru Kristínar.