Þættinum hefur borist svohljóðandi bréf:
„Í tilefni af frábærri gagnrýni á skipulag borgarinnar vil ég spyrja eftirfarandi:
Hvenær var síðast skipulagt verslunarhverfi í Reykjavík?
Svarið er væntanlega – Nýi Miðbærinn !!! ehe
Sá inniheldur verslunarmólið Kringluna. Og: Skrifstofuhúsnæði, prentsmiðju, blaðaútgáfu (fyrrverandi) leikhús, tvo skóla og nokkur raðhús!!
Til að halda í þá skipulagshefð sem skapast hefur í borginni er nauðsynlegt að hafa í huga að borgin er í raun:
Bílaverkstæðið Reykjavík:
Að minnsta kosti man ég ekki eftir öðru þegar ég minnist skipulags undanfarinna áratuga:
Síðumúli-Ármúli
Skipulagt sem iðnaðarhúsnæði. Enn má finna eitt og eitt bílaverkstæði
Gamla Vogahverfið niður við sjó
Þarna voru mörg, mörg bílaverkstæði
Skeifan
Iðnaðarhúsnæði með bílaverkstæðum
Höfðinn
Stærsta bílaverkstæði landsins, taktu eftir að hægt er að keyra um Höfðahverfi og sjá einungis bakhlið húsa! Inngangurinn er í næstu götu!
Hálsar
Iðnaðarhverfi með mörgum bílaverkstæðum.
Ég hlakka mikið til að sjá flugvöllinn hverfa. Á svæðið verður hægt að setja:
7 bensínstöðvar
8 – 10 matvöruverslanir
Byko og Húsasmiðjuna
3-5 skyndibitastaði, helst tengda bensínstöðvunum.
20-25 bílaverkstæði
………5 einbýlishúsalóðir til einkavina.
Hægt er að nota krossflugbrautina sem hraðbraut. Bara að tengja með slaufu við nýju Hringbrautina. Skreyta með hljóðmönum á báða bóga.
Og þá er væntanlega búið að fullnýta flugvallarsvæðið.“