fbpx
Mánudagur 22.júlí 2024
Eyjan

Hringamyndun

Egill Helgason
Sunnudaginn 26. ágúst 2007 13:51

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Athyglisvert. Lesið hér:

„Nú er orðið ljóst að á matvælamarkaðinum er Bónus í raun orðin dýr verslun miðað við það sem áður var og í samanburði við nágrannalöndin, þó svo að í Bónusi sé samt boðið upp á lægsta vöruverð á landinu, en það er að yfirlögðu ráði markaðsráðandi afla, Baugs (Hagkaup, Bónus og 10-11) og Kaupáss (Nóatún, Krónan og 11-11). Sannkallað neyðarbrauð.

Alvarlegar tilraunir hafa verið gerðar til að keppa á matvælamarkaðinum, Europris, sem hefur horfið frá því að vera matvöruverslun og selur núna einkum annan varning. Hver skyldi vera ástæðan? Jú, heildsalar og einkum þó framleiðendur þorðu nefnilega ekki að bjóða þessum fyrirtækjum góð kjör af ótta við refsingu frá hinum sterku markaðsráðandi öflum. Þetta vita margir en hafa ekki hátt um það.

Þegar Bónusverslanirnar hófu starfsemi sína nutu þær aðstoðar heildsala og framleiðenda vegna ótta þeirra við stærð og yfirgang Hagkaupa. Eftir að þessi tvö fyrirtæki sameinuðust síðan í hlutfallslega stærsta matvælafyrirtæki í hinum vestræna heimi þá neyddust heildsalar, og þó sérstaklega framleiðendur, til að veita Baugi óeðlilega háan afslátt á kostnað smærri kaupmanna. Þetta tvennt, hærra innkaupsverð smærri verslana og undirverðlagning hinna stærri varð mörgum kaupmönnum um megn og þeir urðu að loka verslunum sínum. Síðan hafa margir bóksalar og apótek hlotið sömu örlög og nú er grænmetis-, ávaxta- og blómasala í uppnámi.

Núna tólf árum síðar má sjá hvílíku tjóni þessar hringamyndanir Baugs hafa
valdið, m.a. einokun í formi fákeppni á matvælamarkaðinum, þar sem hvorki hagstætt gengi íslensku krónunnar né hagræðing stærðarinnar skilar sér nema að örlitlu leyti til íslenskra neytenda, sem greiða hæsta matvöruverð í hinum vestræna heimi.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

EyjanFastir pennar
Fyrir 23 klukkutímum
Hringamyndun

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Flugfélög: Icelandair stundvísast allra stærri flugfélaga í Evrópu

Flugfélög: Icelandair stundvísast allra stærri flugfélaga í Evrópu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Forsætisráðherra Grænlands heimsótti íslensku gullvinnsluna

Forsætisráðherra Grænlands heimsótti íslensku gullvinnsluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Lífskjör: Kaupmáttur á Íslandi mun minni en hjá nágrannaþjóðum – þriðjungi meiri í Færeyjum

Lífskjör: Kaupmáttur á Íslandi mun minni en hjá nágrannaþjóðum – þriðjungi meiri í Færeyjum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Guðlaugur Þór hefur miklar efasemdir um fyrirhugaða þéttingu byggðar í Grafarvogi

Guðlaugur Þór hefur miklar efasemdir um fyrirhugaða þéttingu byggðar í Grafarvogi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ólafur Stephensen: Samkeppnisyfirvöldum kippt út – eins og dómarinn sé tekinn út af og annað liðið ráði reglunum

Ólafur Stephensen: Samkeppnisyfirvöldum kippt út – eins og dómarinn sé tekinn út af og annað liðið ráði reglunum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Brynjar liggur undir feldi og íhugar vistaskipti – „Orðið flak lýsir best líðan minni núna“

Brynjar liggur undir feldi og íhugar vistaskipti – „Orðið flak lýsir best líðan minni núna“