fbpx
Laugardagur 20.júlí 2024
Eyjan

Grímseyjarferð, Dorniervél Arngríms, dóttir Tryggva, fyrsti maí

Egill Helgason
Þriðjudaginn 1. maí 2007 23:29

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ég fór norður í Grímsey í dag til að stjórna málþingi sem þar var haldið á vegum Sjálfstæðisflokksins undir yfirskriftinni Er jörðin flöt? Kannski er ekki góð latína fyrir fjölmiðlamenn að stjórna fundum á vegum stjórnmálaflokka, en ég stóðst ekki mátið að komast út í Grímsey í fyrsta skipti á ævinni. Það þýðir ekki að biðja mig að stjórna pólitískum fundi sem er nær borginni en það.

Frá Akureyri og út í eyna flugum við á stórmerkri Dornier-flugvél sem er í eigu Arngríms Jóhannssonar og ekki spillti fyrir að Arngrímur sjálfur flaug vélinni, þessi goðsagnakennda persóna í flugheiminum. Hann flaug lágt alla leiðina út Eyjafjörð og maður naut útsýnisins úr vélinni nema smákafla milli Grímseyjar og lands þegar þoka huldi hafflötinn. Eins og allir alvöru flugmenn er Arngrímur sannur töffari.

Hér má sjá mynd af Dorniervélinni sem ég veit að hann er afar stoltur af.

Grímsey er stórkostlegur staður og móttökurnar þar í alla staði höfðinglegar. Hins vegar skildist mér á vinafólki mínu þar að íbúarnir væru ekkert sérlega pólitískir – þeir hefðu til dæmis miklu meiri áhuga á fiski en pólitík. Annars virðist fólk lifa góðu lífi þarna norður við heimskautsbaug, í gamla daga var aldrei sultur í Grímsey, þvert í móti er eyjan matarkista, og ekki heyrði ég neinn eyjaskeggja kvarta undan hlutskipti sínu í dag.

— — —

Á leiðinni í flugvélinni norður yfir heiðar í rak ég augun í merkilega frétt í Mogganum. Látin er María Tryggvadóttir tannsmiður, 89 ára gömul. Þessa konu þekkti ég ekki neitt. En faðir hennar var sögufræg persóna, sjálfur Tryggvi Gunnarsson, alþingismaður og bankastjóri Landsbankans.

Tryggvi andaðist 1917. Samkvæmt Morgunblaðinu fæddist María mánuði eftir lát föður síns. Tryggvi var fæddur 1835 og var 82 ára þegar hann dó. María hefur semsagt átt föður sem fæddist sama ár og til dæmis Mark Twain og sama ár og Darwin kom til Galapagoseyja með skipinu Beagle.

Þetta er allnokkuð. Þegar nánar er að gáð má sjá að í ætt Maríu hafa þrír ættliðir spannað fjórar aldir því afi hennar Gunnar Gunnarsson, prestur í Laufási, var fæddur 1781. Þá voru enn sjö ár í  frönsku byltinguna en fimm ár liðin frá frelsisyfirlýsingu Bandaríkjanna.

Annars má geta þess að Tryggvi Gunnarsson gerði garðinn bak við Alþingishúsið. Til er fræg ljósmynd af honum að vökva beðin þar með harðkúluhatt á hausnum. Legstaður hans er þar í garðinum og stytta af honum.

— — —

Það er sniðugt að veita Bjarna Ármannssyni 900 milljóna starfslokasamning á fyrsta maí. Brýnir fólk til átaka í stéttabaráttunni og til að trúa ekki á slagorð eins og stétt með stétt.

Annars skrifar Páll Baldvin Baldvinsson ansi góðan leiðara um 1. maí í Fréttablaðið í dag. Eins og talað út úr mínu hjarta. Verkalýðsfélög eru nauðsynleg.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Forsætisráðherra Grænlands heimsótti íslensku gullvinnsluna

Forsætisráðherra Grænlands heimsótti íslensku gullvinnsluna
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Iðjulaus Brynjar fer í búðina oft á dag – Þetta er ástæðan

Iðjulaus Brynjar fer í búðina oft á dag – Þetta er ástæðan
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Gott að vita að stóru málin eru í lagi – lofsverð framsýni utanríkisráðherra

Svarthöfði skrifar: Gott að vita að stóru málin eru í lagi – lofsverð framsýni utanríkisráðherra
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ragnar Þór harðorður í garð stjórnmálamanna sem reyni að gera PISA að kynjamáli – „Harðsvíruð tilraun til að drepa málinu á dreif“

Ragnar Þór harðorður í garð stjórnmálamanna sem reyni að gera PISA að kynjamáli – „Harðsvíruð tilraun til að drepa málinu á dreif“