fbpx
Laugardagur 20.júlí 2024
Eyjan

Píkusögur, P-dagur, frelsum ástina, flokksráð VG, bókmenntafræði

Egill Helgason
Mánudaginn 26. febrúar 2007 13:11

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í Silfrinu í gær skýrði ég frá því að mér þætti leikritið Píkusögur geysilega klámfengið. Spurði hvort ekki þyrfti að banna það? Einu sinni var ég viðstaddur fund þar sem flutt var brot úr verkinu, ég sat á efri svölum í Gamla bíói og bliknaði og blánaði. Ég man að ég spurði mig á fundinum – má ég vera á móti ofbeldi gegn konum án þess að hlusta á þessi ósköp?

En þetta leikrit hefur haft geysileg áhrif. Það er undirstaðan undir svokölluðum V-degi sem er haldinn á háskólalóðum víðs vegar um Bandaríkin.

Hér á Íslandi hafa Píkusögur verið notaðar sem tilraunaverkefni í grunnskólum.

Hér er frásögn af ungum háskólanemum i á Rhode Island sem datt í hug að halda svokallaðan P-dag og flytja Tippasögur. Í raun var það ekki annað en tiltölulega saklaus paródía á V-daginn. Kannski svolítið smekklaus – en það eru Píkusögurnar líka. Skemmst er að segja frá því að háskólayfirvöld brugðust við gríninu eins og það sé algjör hryllingur. Tveimur stúdentanna hefur verið hótað brottrekstri úr skóla en tákn P-dagsins var gert upptækt.

— — —

Frelsum ástina, höfnum klámi var ein yfirskrift landsfundar Vinstri grænna. En hvað með allt það fólk sem finnur ekki ást?

Ég man að einu sinni las ég velvakandabréf sem byrjaði svona, klippti það meira það meira að segja út en er búinn að týna því:

"Hvað á að gera fyrir okkur, þúsundir íslenskra karlmanna sem erum dæmdir til einlífis?"

Mig minnir að á þeim tíma hafi hagstofutölur sagt að íslenskir karlar væru tvö þúsund fleiri en konur.

— — —

Í flokksráð Vinstri grænna voru um helgina kosnir þrjátíu flokksmenn. Stundum er sagt að gamlir marxistar hafi séð sér leik á borði að endurfæðast sem umhverfissinnar. Kannski er eitthað hæft í því. Það vekur altént athygli að í flokksráðinu er að minnsta kosti fjórir einstaklingar sem forðum tíð voru virkir í Fylkingunni – Birna Þórðardóttir, Ragnar Stefánsson, Einar Ólafsson og Sveinn Rúnar Hauksson.

Að auki situr í ráðinu ekki minni maður en Ólafur Þ. Jónsson – sjálfur Óli kommi.

— — —

Bókmenntafræði getur verið stórkostleg fræðigrein. Í Fréttablaðinu í síðustu viku fjallaði einn bókmenntafræðingur, Gunnar Stefánsson, um skrif annars bókmenntafræðings, Soffíu Auðar Birgisdóttur. Þau tilheyra greinilega ekki sama skóla í bókmenntafræðinni – vægast sagt. Gunnar er af gamla skólanum, Soffía af einhverjum ótilgreindum nýjum skóla.

Gunnar skrifar:

"Pistillinn Frá bókmenntafræðingi sem birtist í Fréttablaðinu 28. janúar, við hliðina á viðtali við Hermann Stefánsson rithöfund, vakti athygli mína og umhugsun. Satt að segja varð hann til að veikja trú mína á gildi bókmenntafræði eins og hún virðist stunduð hér núna. Í blaðinu eru hugleiðingar Soffíu Bjarnadóttur um skáldsögur.

Eins nykraðan vaðal um bókmenntir hef ég ekki lengi lesið. Inntakið í pistinum virðist það að skáldsagan hafi óljós landamerki nú á dögum, rúmi allt: „Hún sýgur í sig allar greinar, miðlar því sem er og ekki er." Látum svo vera, en síðan kemur: „Það var eitthvað í nútímamanninum sem kallaði á skáldsöguna. Óumræðileg þörf, frelsi og einstaklingshyggja, samsuða í speglasalnum." Myndmálið er nokkuð undarlegt: speglasalur og eldhús í einni vistarveru.

Og svo má spyrja hvenær „nútímamaðurinn" fæddist, sá er kallaði á skáldsöguna. Skáldsögur hafa verið ritaðar öldum saman eins og bókmenntafræðingar vita. Nútímasögunni er svo lýst: „Þefurinn af sjálfskapandi minningum verður undirstaða í þversagnakenndum heimi." Þefur sem undirstaða, ekki er það góður grundvöllur. Hvað eru „sjálfskapandi minningar"? Eru til einhverjar minningar sem ekki mótast í huga einstaklingsins sjálfs"

— — —

Á laugardaginn birti Lesbók Morgunblaðsins, málgagn póstmódernismans á Íslandi, grein eftir Geir Svansson bókmenntafræðing. Í greininni mátti meðal annars lesa þessa málsgrein:

"Risómið er órætt eða óendanlega margrætt; það afbyggir stigveldi, grefur undan forræði, myndar óvænt tengsl og framleiðir flóttalínur undan valdaformgerðum."

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Rashford missir prófið
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ragnar Þór harðorður í garð stjórnmálamanna sem reyni að gera PISA að kynjamáli – „Harðsvíruð tilraun til að drepa málinu á dreif“

Ragnar Þór harðorður í garð stjórnmálamanna sem reyni að gera PISA að kynjamáli – „Harðsvíruð tilraun til að drepa málinu á dreif“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sigrún og Andrea í framkvæmdastjórn Coca-Cola á Íslandi

Sigrún og Andrea í framkvæmdastjórn Coca-Cola á Íslandi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur
Eyjan
Fyrir 1 viku

Helen skrifar: Uppreisnarhaf íslenskunnar

Helen skrifar: Uppreisnarhaf íslenskunnar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ragnar Þór segir þingmann Framsóknarflokksins staðfesta spillingu í landbúnaði – „Allt í boði spilltra stjórnmála“

Ragnar Þór segir þingmann Framsóknarflokksins staðfesta spillingu í landbúnaði – „Allt í boði spilltra stjórnmála“