fbpx
Laugardagur 20.júlí 2024
Eyjan

Spilltur fótbolti

Egill Helgason
Fimmtudaginn 8. febrúar 2007 23:39

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á breskri bloggsíðu les ég ágæta grein um dauða þess sem er kallað leikur fólksins – the people´s game. Nú er búið að selja sex af stóru ensku fótboltaklúbbunum til útlendra auðjöfra. Liðin eru fyrst og fremst orðin það sem kallast franchise – vörumerki. Einu sinni taldi ég mig halda með Liverpool. Það var á árunum þegar liðið spilaði skemmtilegan og kraftmikinn sóknarfótbolta, ekki sakaði að félagið var frá Bítlaborginni og hafði spilað Evrópuleik við gullaldarlið KR þegar árið 1964.

Nú dettur mér ekki í hug að halda með Liverpool lengur. Þessi forðum glæsilegi klúbbur hefur verið seldur bandarískum auðmönnum. Maður heldur ekki með fyrirtæki, ekki fótboltaliði fremur en Sony, Pepsi Cola eða Starbuck´s.

Ef einhver auðkýfingur – segjum Björgólfur – myndi kaupa KR, þá myndi ég líka hætta að halda með félaginu. Sem betur fer er eftir svo litlu að slægjast að varla er hætta á því í bili.

Einu sinni byggðu bresku fótboltafélögin upp á drengjum sem voru aldir upp nálægt leikvöllunum. Áhorfendurnir komu líka úr hverfinu. Nú snýst þetta allt um gráðuga og fordrekraða leikmenn og umboðsmenn þeirra, peninga og sjónvarpsréttindi. Spillingin í þessum heimi ríður ekki við einteyming. Helstu gestirnir á leikvöngum eru núna bisnessmenn sem njóta veitinga í sérstökum stúkum – alveg burtséð frá því hvort leikurinn skiptir einhverju máli fyrir þá.

Þess vegna finnst mér flottar hugmyndir Michels Platini sem vill fá aftur gömlu Evrópukeppnina í knattspyrnu þar sem aðeins meistaralið hvers lands tekur þátt – í staðinn fyrir Meistaradeildina þar sem ríkustu félögin ráða öllu. KR gæti þá aftur lent á móti Liverpool ef ég skil rétt. En líklega nær gamli boltasnillingurinn þessu ekki í gegn. Andstaðan frá ríku félögunum er of mikil. Þau eru of voldug.

Og þess vegna styð ég líka framboð Höllu Gunnarsdóttur. Ég held að hún sé eins og ferskur gustur inn í þann fremur ókræsilega heim sem fótboltinn er að verða.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 klukkutímum
Spilltur fótbolti

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Björn Jón skrifar: Ráðamenn sem hossa sjálfum sér

Björn Jón skrifar: Ráðamenn sem hossa sjálfum sér
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Jón Sigurður skrifar – Farsælast að vera fullkomlega sannfærður um eigin ranghugmyndir

Jón Sigurður skrifar – Farsælast að vera fullkomlega sannfærður um eigin ranghugmyndir
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ragnar Þór segir þingmann Framsóknarflokksins staðfesta spillingu í landbúnaði – „Allt í boði spilltra stjórnmála“

Ragnar Þór segir þingmann Framsóknarflokksins staðfesta spillingu í landbúnaði – „Allt í boði spilltra stjórnmála“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Ríkisútvarpið telst trauðla menningarstofnun

Björn Jón skrifar: Ríkisútvarpið telst trauðla menningarstofnun