fbpx
Föstudagur 19.júlí 2024
Eyjan

Tvær bíómyndir

Egill Helgason
Fimmtudaginn 7. desember 2006 12:10

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ég hef alltaf haft tvíbenta afstöðu til Bondmynda. Að sumu leyti geta þær verið þægileg afþreying, en mér hafa líka reynst þær besta svefnmeðal. Því aldrei gerist neitt óvænt í Bondmynd. Þannig sofnaði ég yfir þarsíðustu Bondmynd á sýningu í Laugarásbíói fyrir nokkrum árum.

Nú hefur maður lesið að nýja Bondmyndin eigi að vera miklu frábærari en hinar – að þarna kveði við nýjan tón. Ég fór í bíó og sannreyndi að svo er ekki. Daniel Craig er snöfurmannlegur leikari, það hefur maður séð áður, en annars er þetta ekkert nema steingeldar tæknibrellur, söguþráður nánast ekki fyrir hendi og persónusköpun í lágmarki – meira að segja fyrir Bondmynd.

Það lekur eitthvað úr auga aðalbófans, en annars er hann ósköp litlaus – keppir allavega ekki við klassíska Bondóþokka eins og Goldfinger og Blofeld.

Sorrí, þetta er alveg hundleiðinleg mynd.

— — —

Hins vegar sá ég frábæra mynd um daginn á geisladiski – hún hafði farið framhjá mér í bíó. Hún heitir Syriana með George Clooney í aðalhlutverki. Fjallar um olíu. Ég endaði með því að horfa á hana tvisvar. Þarna er dregin upp einkar sannfærandi mynd af óskaplega miklu valdi sem spillir og gerspillir.

Sagan er býsna flókin, stundum dálítið ruglingsleg, en það gerir myndina í raun meira sannfærandi. Hún er sögð frá þremur sjónarhornum. Þarna eru bandarískir jakkafatamenn sem lifa á gráu svæði milli stjórnmála og olíuviðskipta, olíufurstar og fjölskyldur þeirra sem lifa í ofboðslegum forréttindum og loks snauðir farandverkamenn sem vinna í olíuiðnaðinum og eru móttækilegir fyrir herskáum boðskap íslamista – kannski skiljanlega.

Allt er þetta frekar skelfilegt. Ég fullyrði að þetta sé ein besta pólitíska mynd sem hefur verið gerð. Og hún verður ekki verri fyrir að hún er tekin á mjög trúverðugum söguslóðum í Miðausturlöndum, innan um dapurlegar blokkir og hrollvekjandi olíusvæði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Jón Sigurður skrifar – Farsælast að vera fullkomlega sannfærður um eigin ranghugmyndir

Jón Sigurður skrifar – Farsælast að vera fullkomlega sannfærður um eigin ranghugmyndir
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Einstaklingshyggjan hefur rænt okkur vitinu

Sigmundur Ernir skrifar: Einstaklingshyggjan hefur rænt okkur vitinu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði