fbpx
Föstudagur 19.júlí 2024
Eyjan

Guðmundur á Mokka kvaddur

Egill Helgason
Mánudaginn 20. nóvember 2006 18:59

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðmundur Baldvinsson var jarðsunginn í dag í Kristkirkju. Guðmundur var einstakur öðlingur sem í áratugi rak hið frábæra kaffihús Mokka á Skólavörðustíg. Kaffihúsið er löngu orðið sígilt, enda líður brátt að því að það hafi starfað í hálfa öld, innréttingarnar þar inni í dásamlegum módernískum stíl frá því í kringum 1960 og hefur aldrei verið breytt, þögnin þar inni – Guðmundur setti víst upp hátalara þegar hann opnaði staðinn og ætlaði að spila klassíska músík en þeir voru aldrei notaðir.

Þegar ég var í menntaskóla var Mokka ennþá eini staðurinn á Íslandi þar sem var hægt að fá alvöru ítalskt kaffi, espresso og capuccino. Nú hafa tímarnir breyst, ég hef til dæmis sannreynt að þennan drykk er hægt að fá í Stykkishólmi og á Blönduósi. Víða um bæinn eru kaffihús sem selja prýðilegt kaffi, en flest eru þau karakterlaus miðað við hið sögufræga Mokka. Og þau verða ábyggilega ekki jafn langlíf.

Ég var fastagestur á Mokka árum saman og mannlífsflóran var stórbrotin. Minnisstæðir eru Thor Vilhjálmsson, Sigfús Daðason, Jón Gunnar Árnason, Dagur Sigurðarson, Þorsteinn frá Hamri, Andrés Kolbeinsson og Jörundur Hilmarsson, en svo voru náttúrlega líka minni spámenn, ekki síður eftirminnilegir. Bundu kannski ekki allir bagga sína sömu hnútum og samferðamennirnir.

Aldrei varð ég var við að Guðmundur færi í manngreinarálit. Hann virtist innilega laus við allt snobb og tildur og var einstaklega umburðarlyndur gagnvart mislitum gestahóp. Líka gagnvart mér og vinum mínum sem stundum vorum svo vitlaus að móðir eins okkar kallaði okkur tortímingarsveitina.

En eftir árin á Mokka er ég svo snobbaður að ég drekk aldrei annað kaffi en ítalskt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Jón Sigurður skrifar – Farsælast að vera fullkomlega sannfærður um eigin ranghugmyndir

Jón Sigurður skrifar – Farsælast að vera fullkomlega sannfærður um eigin ranghugmyndir
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Einstaklingshyggjan hefur rænt okkur vitinu

Sigmundur Ernir skrifar: Einstaklingshyggjan hefur rænt okkur vitinu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði