fbpx
Þriðjudagur 26.nóvember 2024
Eyjan

Nauðsyn þess að endurnýja

Egill Helgason
Þriðjudaginn 31. október 2006 18:29

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ekki verður annað séð en að niðurstöðurnar úr prófkjöri Sjálfstæðisflokksins séu stórkostleg áskorun til Samfylkingarinnar um að endurnýja á framboðslistum sínum. Því eins og gamall sjálfstæðismaður sagði við mig lýsir af Guðfinnu Bjarnadóttur á lista Sjálfstæðisflokksins og Illugi Gunnarsson er líka mikið efni, kannski mesti framtíðarmaðurinn í flokknum.

Andspænis þessu þarf Samfylkingin að hugsa sinn gang. Hún er langt á eftir Sjálfstæðisflokknum í könnunum þótt mjótt hafi verið á mununum í siðustu kosningum. Ef marka má síðustu Gallupkönnun fær Sjálfstæðisflokkurinn 27 þingmenn en Samfylkingin aðeins 16.

Í þingliði Samfylkingarinnar er furðu margt fólk sem má kalla farþega. Með nokkrum undantekningum er þetta frekar dauflegur hópur. Endurnýjunin hefur verið harla lítil síðan flokkurinn bauð fyrst fram 1999. Einhverjir hafa reyndar horfið burt, en í staðinn hafa komið fremur tilþrifalitlir varaþingmenn.

— — —

Ekki vantar svosem framboðið á nýju fólki í prófkjörunum sem eru framundan. Troðningurinn er raunar svo mikill að hætt er við að nýliðarnir taki aðallega atkvæði hverjir frá öðrum – og þannig sitji sömu þingmennirnir áfram í sama gamla stjórnarandstöðuþæfingnum. Það væri afar vont fyrir flokkinn. Þess vegna var svo skrítið að heyra formann Samfylkingarinnar lýsa yfir vonbrigðum þegar einhverjum atkvæðaminnsta þingmanni flokksins var hafnað í prófkjöri. Líklega hefði verið nær að fagna.

En það er semsagt nóg ágætu fólki sem vill setjast á þing fyrir Samfylkinguna, eiginlega furðulegt hversu margir hafa áhuga miðað við hvað prófkjör eru erfið fyrir almenna borgara: Árni Páll Árnason, Kristún Heimisdóttir, Jakob Frímann Magnússon, Guðmundur Steingrímsson, Glúmur Baldvinsson, Magnús Norðdahl, Ellert B. Schram, Anna Sigríður Guðnadóttir, Þórhildur Þorleifsdóttir, Gunnar Svavarsson, Byndís Ísfold, Steinunn Valdís Óskarsdóttir.

Um að gera að gefa gamla liðinu frí.

— — —

Sjálfstæðismenn alltaf að tala um andstæðinga. Björn Bjarnason notar þetta orð og Geir Haarde líka. Ef maður segir eitthvað um Sjálfstæðisflokkinn, fær maður einatt framan í sig að maður sé andstæðingur hans. Það á einhvern veginn að skýra allt.

Þetta er gamalt og púkalegt "við og hinir"-viðhorf. Ef þú ert ekki með okkur ertu á móti okkur.

Ég er ekki virkur í Sjálfstæðisflokknum en ég er samt ekki andstæðingur hans. Það er alveg hægt.

— — —

Sólveig Pálsdóttir á Svínafelli er látin, elsta kona Íslands. Það voru eiginlega merkilegustu fréttirnar í vikunni. Kristján Már Unnarsson sagði í fréttum að hún hefði verið síðasti Íslendingurinn sem var fæddur á 19. öld. Það er skrítin tilhugsun að allt fólkið frá því tímabili sé horfið. Móðurafi minn og amma voru bæði fædd á 19. öldinni. Æ, þetta er bara svona:

Bókfellið velkist, og stafirnir fyrnast og fúna
fellur í gleymsku það orð sem er lifandi núna.
legsteinninn springur, og letur hans máist í vindum,
losnar og raknar sá hnútur sem traustast vér bindum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Segir fund með Grindvíkingum sláandi – „Það er orðið svo þreytt að segja að hugur manns sé hjá þeim“

Segir fund með Grindvíkingum sláandi – „Það er orðið svo þreytt að segja að hugur manns sé hjá þeim“
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Ræðum ESB!

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Ræðum ESB!