fbpx
Þriðjudagur 26.nóvember 2024
Eyjan

Leyndarhyggja og aumingjalegur samningur

Egill Helgason
Sunnudaginn 1. október 2006 14:59

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það væri gaman að frétta af því ef einhver umræða um stjórnmál fer fram í ríkisstjórnarflokkunum á Íslandi. Tökum til dæmis varnarmálin. Hefur yfirleitt verið rætt um þau í stjórnarflokkunum, áður en formennirnir dúkkuðu upp með hið nýja samkomulag um varnir Íslands? Hún er merkileg þessi sívaxandi tilhneiging til leyndarhyggju sem er að ríða pólitíkinni hjá smáþjóðinni á slig. Því auðvitað ætti ekkert að vera auðveldara en að hafa allt opið og öndvert – hvað þarf að fela í svona fámennu og friðsömu landi?

Hver skyldi vera skýringin? Slímusetur ákveðinna ráðamanna sem ekki nokkur leið virðist vera að losna við – og eru sífellt haldnir meiri ofsóknarkennd? Almennt sinnuleysi kjósenda og leiði á pólitík? Eða kannski sú staðreynd að sumir pólitísku flokkarnir eru hættir að vera annað en klúbbar um valdasetu?

Hvað sem því líður er hið nýja samkomulag um varnir landsins í meira lagi aumingjalegt. Felur vísast í sér að íslenskum ráðherrum er heimilt að hringja í bandaríska sendiráðið ef eitthvað bjátar á. Kananum er ekki gert að hreinsa eftir sig. Þó er vitað að sóðaskapurinn er ærinn – og að Íslendingar munu seint vilja búa í slömminu uppi á Velli.

Svo virðist eiga að vera stöðugur straumur af íslenskum löggæslumönnum á námskeið í Bandaríkjunum. Er von þótt maður spyrji hvort slíkt sé við hæfi nú um stundir – maður getur kannski notað orðið smekklegt – hvort við viljum yfirleitt vera í slíku samstarfi við bandaríska dólga á tíma stríðsrekstrar í Írak og Afganistan, Guantanamo, Bush og Rumsfelds.

En um þetta var varla nokkuð rætt, enda er fýla algengustu viðbrögð valdamanna hér við umræðu um stjórnmál.

— — —

Herstöðvaandstæðingar fagna. Brottför hersins kemur baráttu þeirra samt nákvæmlega ekkert við. Hann fór bara þegar Bandaríkjamönnum hentaði. Hins vegar var óþarfi af utanríkisráðuneytinu að setja kjánaleg skilyrði um að herstöðvaandstæðingar mættu ekki veifa íslenska fánanum á Keflavíkurflugvelli. Því auðvitað er margs að minnast úr baráttunni. Sjálfum er mér skapi næst að draga fram gamla grammófóninn – ef nálin væri ekki ónýt – og spila nokkur sprenghlægileg lög úr baráttunni sem ég varðveiti á rispuðum hljómplötum:

"Þjóðunn Þjóðansdóttir
vísust af völum
ætlarðu að lifa alla tíð,
ambátt í feigðarsölum,
á blóðkrónum og betlidölum."

Eða:

"Hefurðu komið í kokteilinn þann
sem Kaninn á Vellinum býður,
Víetnamablóð í vínið þar er látið
og vonleysisins tár sem fanginn hefur grátið"

Eða kannski bara Vögguvísu öreigamóður sem Silja söng af svo mikilli tilfinningu inn á hljómplötu um árið?

— — —

Um Kárahnjúka mátti heldur aldrei ræða neitt af viti í stjórnarflokkunum. Ólafur F. Magnússon var baulaður niður þegar hann vildi fá umræðu um málið á landsfundi Sjálfstæðisflokksins. Þetta var bara sett svona upp af fámennri valdaklíku. Sjálfur var ég eitt sinn beðinn að koma á fund hjá hópi fólks af hægra vængnum sem var búið að fá nóg af þessu og vildi reyna að stofna flokk Hægri grænna. Það tókst því miður ekki.

Nú virðist hafa orðið algjör viðhorfsbreyting. Bók Andra Snæs hefur vísast haft mikil áhrif. Í kjölfar kemur fólkið sem gekk eins og fljót með Ómari. Samt er þetta alltof seint til kommið. Hvar var þessi hreyfing fyrir fimm árum? Það er geggjuð hugmynd að vilja ekki nota virkjunina nú þegar búið er að reisa hana og álverið og – afsakið – manni finnst heldur ekki mjög sennilegt að mannvirkin taki upp á því að hrynja. Þar hlupu Vinstri grænir á sig.

Hins vegar er það svo kaldhæðnislegt að Samfylkingin virðist ætla að verða helsta fórnarlamb virkjananmálsins. Það er erfitt að sitja klofvega.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Arnar Þór Jónsson: Lokum stofnunum og segjum upp þeim sem ekki sinna sínu starfi

Arnar Þór Jónsson: Lokum stofnunum og segjum upp þeim sem ekki sinna sínu starfi
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Stjórnarmyndun eftir kosningar: Framsókn mögulega í ríkisstjórn – afdrif Ásmundar gætu gefið tóninn

Stjórnarmyndun eftir kosningar: Framsókn mögulega í ríkisstjórn – afdrif Ásmundar gætu gefið tóninn
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Ræðum ESB!

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Ræðum ESB!
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Sér íslenskir skattar og yndi stjórnlyndra flokka

Þorsteinn Pálsson skrifar: Sér íslenskir skattar og yndi stjórnlyndra flokka