fbpx
Fimmtudagur 18.júlí 2024
Eyjan

Þegar ég elti William Hague

Egill Helgason
Föstudaginn 20. janúar 2006 18:49

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í Morgunblaðinu er sagt frá því að Geir Haarde hafi átt fund með William Hague, þeim er nú fer með utanríkismál í skuggaráðuneyti Íhaldsflokksins á Bretlandi. Hague er eini maðurinn sem ég hef elt á röndum (enska: stalk) á blaðamannsferli mínum. Ég hefði aldrei enst lengi á DV.

— — —

Þannig var að sumarið 2000 var ég í Máli & menningu eitt blíðviðriskvöld. Rakst þar á áberandi sköllóttan mann sem ég þóttist kannast við – sá fljótt að þetta var William Hague, formaður breska Íhaldsflokksins. Með honum var unnusta hans Ffion sem þá var talsvert í fréttum. Enginn annar en ég virtist bera kennsl á skötuhjúin. Þetta sumar varð ekki þverfótað fyrir frægu fólki á Íslandi.

Mér fannst þetta dálítið skúbb, hringdi í kvikmyndatökumann af Skjá einum þar sem ég vann, elti svo Hague fótgangandi niður á Tjörn, svo upp Þingholtin, þangað til ég loks náði honum á Skólavörðuholti.

Þar tók ég viðtal við hann. Það sem stóð upp úr var að Hague virtist ekkert þekkja til Davíðs Oddssonar, eða allavega gaf hann ekkert út á það. Ég tjáði honum að það væri miður – Oddsson væri einhver sigursælasti íhaldsmaður á Vesturlöndum. Stýrði flokk sínum og þjóð með járnaga. Hann gæti kennt breskum íhaldsmönnum ýmislegt í pólitík. Gæti jafnvel haldið námskeið fyrir þá.

— — —

Ég sagði nokkrum kunningjum mínum í Sjálfstæðisflokknum frá þessu og þeim þótti illt að heyra um vanþekkingu Hagues. Voru held ég hálf móðgaðir fyrir hönd Davíðs. Hins vegar held ég að Davíð hefði getað spjarað sig í pólitík hvar sem er í heiminum; já, hann hefði jafnvel getað orðið formaður breska Íhaldsflokksins ef örlögin hefðu hagað því svo.

Altént hefði Davíð örugglega verið hæfari en eftirmaður Hagues – þá völdu þeir skoplegan gamlan majór úr hernum, Ian Duncan Smith, sem var í essinu sínu meðal gamla fólksins á kirkjubasörum í Cotswolds, en virkaði eins og álka í fjölmenningarsamfélaginu í London.

— — —

Annars þykir Wiilliam Hague mikill greindarmaður, þótt hann hafi útlitið að vissu leyti á móti sér. Frasinn "fóstur í jakkafötum" hefði getað verið saminn um hann. Ég er ekki frá því að hann hafi verið pínu óhugnanlegur á að líta þegar hann sextán ára flutti fræga ræðu þar sem hann mærði Margréti Thatcher á flokksþingi Íhaldsflokksins. Hann var svo aðeins 36 ára þegar hann var kjörinn formaður flokksins.

En Hague þurfti ekki að kemba hærurnar í formanssætinu. Þetta var líka vonlaust verkefni á þessum árum; Tony Blair valtaði yfir hann eins og eimreið. Síðan hefur Hague meðal annars fengist við að skrifa ævisögu Pitts yngri, sem varð forsætisráðherra Bretlands aðeins 24 ára. Hague hefur ekki dregið dul á að Pitt sé fyrirmynd hans.

Hann er að mörgu leyti áhugaverðari maður en David Cameron sem hefur það helst sér til framdráttar að hann minnir á Tony Blair og er til í setja öll hefðbundin stefnumál Íhaldsflokksins í loft upp, gerast ógnar meyr og miðjusinnaður – taka í rauninni upp blairisma – til að ná völdum.

Það segir sitt um hugsjónalausa pólitík nútimans að honum virðist jafnvel ætla að takast þetta.

— — —

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Jökull á heimleið
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ólafur Stephensen: Samkeppnisyfirvöldum kippt út – eins og dómarinn sé tekinn út af og annað liðið ráði reglunum

Ólafur Stephensen: Samkeppnisyfirvöldum kippt út – eins og dómarinn sé tekinn út af og annað liðið ráði reglunum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Brynjar liggur undir feldi og íhugar vistaskipti – „Orðið flak lýsir best líðan minni núna“

Brynjar liggur undir feldi og íhugar vistaskipti – „Orðið flak lýsir best líðan minni núna“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Rasismi sagður á uppleið í Frakklandi – Spennan magnast fyrir seinni umferð þingkosninganna – Ofbeldisverk framin af bæði vinstri og hægri mönnum

Rasismi sagður á uppleið í Frakklandi – Spennan magnast fyrir seinni umferð þingkosninganna – Ofbeldisverk framin af bæði vinstri og hægri mönnum
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Samfélag til að græða á

Sigmundur Ernir skrifar: Samfélag til að græða á