fbpx
Mánudagur 25.nóvember 2024
Eyjan

Tónlistarhús, mælskusnilld, stjórnmál og heimsmeistarakeppni

Egill Helgason
Laugardaginn 29. apríl 2006 21:46

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sjaldan hefur maður heyrt jafnmikið tuð yfir einum hlut og tónlistarhúsinu sem á að byggja í Reykjavík – og hefur staðið til að reisa í marga áratugi. Á sama tíma kvartar enginn undan endalausum íþróttabyggingum út um allt land. Nú er verið að byggja við Laugardalsvöllinn, í Laugardalnum er nýbúið að reisa yfirbyggða sundlaug og viðbyggingu við Laugardalshöllina.

Tröllaukin knattspyrnuhús rísa út um allt land – þegar ég var á Reyðarfirði um daginn sá ég að þar er í smíðum slíkt hús – en þegar loks á að byggja hús yfir tónlistina í landinu fárast menn yfir óþarfa og bruðli.

Á það er samt að líta af svona hús yrði ekki bara mikilvæg menningarstofnun, heldur gæti það hleypt miklu lífi í borgina. Byggingar af þessu tagi hafa margfeldisáhrif – Egill Ólafsson lýgur engu um það.Um slíkt eru mörg nýleg dæmi úr erlendum borgum, maður getur nefnt af handahófi Bilbao, Kaupmannahöfn og Montpellier.

Borg sem á engar glæsibyggingar er flatneskja.

— — —

Í tilefni kosninganna er rétt að taka fram að tengslin milli mælsku og stjórnvisku eru ekki einhlít. Margir ágætir stjornvitringar eins og Bjarni Benediktsson, Per Albin Hanson, Helmut Kohl og Gro Harlem Brundtland hafa verið lélegir ræðumenn. Halldór Ásgrímsson er ekki góður ræðumaður heldur og því síður Geir Haarde.

Einar Olgeirsson var hins vegar góður ræðumaður. Hann hafði samt hérumbil alltaf rangt fyrir sér. Það var Gunnar Thoroddsen líka. Davíð Oddsson gat stundum verið góður, en Bill Clinton og Churchill teljast vera ræðusnillingar. Það voru Hitler og Göbbels líka.

Stalín var hins vegar óáheyrilegur.

— — —

Mikið er það virðingarvert af knattspyrnuþjálfaranum Luiz Felipe Scolari að nenna ekki að standa í bresku pressunni. Hún var búin að tjalda utan við hús hans í tvo sólarhringa þegar hann hætti við að verða þjálfari enska landsliðsins. Sagðist ekki ætla að eyða lífi sínu í svona rugl.

Heimsmeistarakeppnin í fótbolta er að byrja í Þýskalandi eftir rúman mánuð. Líklegustu sigurvegararnir eru Brasilía,Ítalía og Argentína. Englendingar eru ekki í þessum hópi þótt þeir haldi það sjálfir. Það er alltaf fyndið að fylgjast með bresku pressunni, hvernig hún spanar sig upp, fjallar um Beckham eða Lampard á tíu blaðsíðum á dag – og svo vonbrigðin sem grípa um sig þegar sannleikurinn kemur í ljós.

Þetta er svona dálítið eins og Íslendingar og Evróvision.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Arnar Þór Jónsson: Lokum stofnunum og segjum upp þeim sem ekki sinna sínu starfi

Arnar Þór Jónsson: Lokum stofnunum og segjum upp þeim sem ekki sinna sínu starfi
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Stjórnarmyndun eftir kosningar: Framsókn mögulega í ríkisstjórn – afdrif Ásmundar gætu gefið tóninn

Stjórnarmyndun eftir kosningar: Framsókn mögulega í ríkisstjórn – afdrif Ásmundar gætu gefið tóninn
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Ræðum ESB!

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Ræðum ESB!
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Sér íslenskir skattar og yndi stjórnlyndra flokka

Þorsteinn Pálsson skrifar: Sér íslenskir skattar og yndi stjórnlyndra flokka