fbpx
Fimmtudagur 18.júlí 2024
Eyjan

Ljóst eða dökkt?

Egill Helgason
Fimmtudaginn 27. apríl 2006 20:57

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Maður sem ég hitti taldi að valið í borgarstjórnarkosningunum í Reykjavík stæði milli eintómra sósíalistaflokka. Einkum fannst honum Sjálfstæðisflokkurinn vera farinn að hallast langt til vinstri. En það er sjálfsagt meðvitað – flokkurinn veit að til þess að vinna borgina þarf hann að höfða til fólks sem venjulega myndi ekki kjósa hann – og til kvenna sem hafa frekar forðast hann undanfarin ár.

Loforð um að taka á öllu "skutlinu" sem er að fara með borgarbúa ættu að höfða sérstaklega til kvenna – allavega þeirra sem ég hef talað við. En þá er þess að gæta að tímasóunin sem Sjálfstæðisflokkurinn vill nú forða borgurunum frá á fyrst og fremst rætur sínar í vondu borgarskipulagi.

Í svona dreifðri borg eru allar leiðir mjög langar og ferðir taka óþarflega mikinn tíma. Þannig er þetta vandi sem við höfum skapað okkur sjálfum með fyrirhyggjuleysi – já og heimsku. Vandamálið versnar svo eftir því sem kreppist meira um tíma fólks – og eldsneytisverð hækkar.

— — —

Annars er merkilegt að sjá auglýsingar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. Sjálfstæðisflokkurinn er nefnilega með ljóshærða fólkið, stillir því afar fallega upp: Hönnu Birnu, Gísla Marteini, Þorbjörgu Helgu, Júlíusi Vífli, Sif Sigfúsdóttur.

Samfylkingin teflir hins vegar fram dökkhærðu fólki: Degi B., Steinunni Valdísi, Björk Vilhelmsdóttur, Oddnýju Sturludóttur, Dofra Hermannssyni.

Hvort er sigurstranglegra – ljóst eða dökkt hár?

— — —

Sturla Böðvarsson hefur verið með eilífan þvergirðing í garð Reykjavíkur allar götur síðan hann varð samgönguráðherra. Helst hefur ekki mátt kosta neinu til neins í borginni. Því er helber dónaskapur þegar hann vill skipa fyrir um hvar í bænum Sundabrautin á að liggja. Sturla ætlar að bjóða upp á einhvers konar útsöluleið, eins ódýrt og lélegt og hægt er – alveg án tillits til byggðarinnar í kring.

Svo fer Sturla að hóta að byrja að byggja Sundabraut uppi á Kjalarnesi. Þangað er byggðin að dreifast eftir endalaus skipulagsmistök undanfarinnaáratuga. Þarna í rokinu er auðvitað síðasti staðurinn þar sem á að byggja borg. En ráðherrann vill semsé ná sér niðri á Reykvíkingum með því að hefja framkvæmdir þar – í strjálbýlinu.

En auðvitað er þetta fýlubomba hjá Sturlu. Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík hlýtur að sverja hann af sér. Hann hefur varla haldið að hann gerði flokknum gagn með þessu.

— — —

Talandi um sósíalistaflokka. Góður kunningi minn gaukaði að mér stefnuskrá Sósíalistaflokksins frá því 1964. Þetta er frá þeim tíma þegar Sósíalistaflokkurinn var partur af Alþýðubandalaginu. Báðir flokkarnir eru dauðir og hugmyndafræði þeirra líka – eða hvað? Margt fólk sem var í þessum flokkum er enn í fullu fjöri.

Þarna eru margar góðar tillögur, meðal annars um að ríkið taki í sínar hendur "framleiðslu og heildsölu á sælgæti, öli, gosdrykkjum o.fl.".

Skoðum það nánar seinna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Jökull á heimleið
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ólafur Stephensen: Samkeppnisyfirvöldum kippt út – eins og dómarinn sé tekinn út af og annað liðið ráði reglunum

Ólafur Stephensen: Samkeppnisyfirvöldum kippt út – eins og dómarinn sé tekinn út af og annað liðið ráði reglunum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Brynjar liggur undir feldi og íhugar vistaskipti – „Orðið flak lýsir best líðan minni núna“

Brynjar liggur undir feldi og íhugar vistaskipti – „Orðið flak lýsir best líðan minni núna“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Rasismi sagður á uppleið í Frakklandi – Spennan magnast fyrir seinni umferð þingkosninganna – Ofbeldisverk framin af bæði vinstri og hægri mönnum

Rasismi sagður á uppleið í Frakklandi – Spennan magnast fyrir seinni umferð þingkosninganna – Ofbeldisverk framin af bæði vinstri og hægri mönnum
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Samfélag til að græða á

Sigmundur Ernir skrifar: Samfélag til að græða á