fbpx
Föstudagur 19.júlí 2024
Eyjan

Tvö sjónarhorn á Reykjavík

Egill Helgason
Mánudaginn 3. apríl 2006 14:10

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í tveimur blaðagreinum sem birtust um helgina koma fram mjög ólík viðhorf til byggðarinnar í Reykjavík. Annars vegar er viðtal Kolbrúnar Bergþórsdóttur við Jón Baldvin Hannibalsson sem birtist í Blaðinu, hins vegar grein sem Halldór Jónsson verkfræðingur sendi til Morgunblaðsins undir yfirskriftinni Reykjavíkurflugvöllur perla höfuðborgarsvæðisins. Báðar eru greinarnar bráðskemmtilegar.

Jón:

"Samt kom mér á óvart mikilmennskubrjálæðið í Reykjavík sem þykist vera Los Angeles þótt hún sé einungis lítið þorp. Þetta mikilmennskubrjálæði er nægilega mikið til að skapa allsherjar umferðaröngþveiti og skipulagsslys. Áratugum saman hefur ekki verið hugsað fram í tímann um vöxt þessarar borgar. Borgarstæði Reykjavíkur er fagurt og við höfðum tækifæri til að byggja fagra borg en í staðinn höfum við byggt þorp sem í hefur hlaupið ofvöxtur. Allt er byggt utan um bíla. Um leið verður ameríkaniseringin glær og hryllileg. Amerískar borgir eru eitt það ömurlegasta sem til er. Þær eru bensínstöð, vídeóleiga og byssubúð.Reykjavík er að apa eftir þessu. Evrópskar borgir eiga sér sögu og sú saga snýst um fólk, ekki bíla. Við erum orðin risavaxið bílastæði."

Halldór:

"Borgir og samgöngur eru fyrir fólk. Flugvélar og bílar eru undirstaða frelsis og lífsgæða fólks. Sífelldar prédikanir um fegurð reiðhjóla og almenningsvagna ná ekki eyrum fólks. Fólkið má því ekki láta einhverja sjálfskipaða beturvitendur segja sér fyrir verkum eða spilla framtíðarhögum sínum andvaraleysi. Fólkið, að múslímum kannske frátöldum, vill frelsi skoðana, einkabílsins og flugsins. Gamli miðbær Reykjavíkur var í Kvosinni. Þar er ekki til neinn slíkur miðbær lengur. Flest gamla starfsemin er farin þaðan og kemur aldrei aftur. Margt, sem er þar enn, mun líka fara þaðan vegna þess að fólkið er farið annað. Þetta er og verður túrista- og skemmtihverfi þar sem barnlaust fólk kann vel við sig. Þarna er næg vídd í kring, sem flugvöllurinn í Vatnsmýrinni skapar, til að halda þjóðhátíðir og menningarnætur. Staður þar sem fólk kemur saman að skemmta sér. En fáir vilja endilega vill búa með börnin sín á Reperbahn, Central Park eða við Times Square."

Dæmi nú hver fyrir sig.

— — —

Samvæmt þessari grein sem birtist í Berlingske Tidende á síðasta ári er Svenn Dam, hinn nýji stjóri 365 media í Danmörku, uppnefndur Saddam. Hann þykir ná árangri en á kostnað mannlega þáttarins. Den begavede brutalis, kallar blaðið hann. Það hlýtur að lofa góðu um vöxt og viðgang fyrirtækisins í Skandinavíu.

— — —

Manni skilst að nýtt fjölmiðlafrumvarp sé tilbúið frá nefndinni sem var sett til að semja það. Skyldi það verða lagt fram í vor? Er kannski ekkert því til fyrirstöðu að samþykkja það?

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sakar Reykjavíkurborg um að draga lappirnar varðandi viðbrögð við rafhjólaslysum

Sakar Reykjavíkurborg um að draga lappirnar varðandi viðbrögð við rafhjólaslysum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Áslaug Arna teflir öllu fram og segir Sjálfstæðisflokkinn geta gert margt betur – „Sorglegt að sjá víða að við förum ekki betur með fé“

Áslaug Arna teflir öllu fram og segir Sjálfstæðisflokkinn geta gert margt betur – „Sorglegt að sjá víða að við förum ekki betur með fé“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ólafur Stephensen: Samkeppnisyfirvöldum kippt út – eins og dómarinn sé tekinn út af og annað liðið ráði reglunum

Ólafur Stephensen: Samkeppnisyfirvöldum kippt út – eins og dómarinn sé tekinn út af og annað liðið ráði reglunum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir sigur Kristrúnar og Samfylkingarinnar geta orðið mun stærri en búist er við

Segir sigur Kristrúnar og Samfylkingarinnar geta orðið mun stærri en búist er við
Eyjan
Fyrir 1 viku

Rasismi sagður á uppleið í Frakklandi – Spennan magnast fyrir seinni umferð þingkosninganna – Ofbeldisverk framin af bæði vinstri og hægri mönnum

Rasismi sagður á uppleið í Frakklandi – Spennan magnast fyrir seinni umferð þingkosninganna – Ofbeldisverk framin af bæði vinstri og hægri mönnum