fbpx
Föstudagur 19.júlí 2024
Eyjan

Selja! Selja! Selja!

Egill Helgason
Mánudaginn 13. mars 2006 20:37

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þegar bankastjórar, forsætisráðherra og fjármálaráðherra koma fram og segja að allt sé í himnalagi, þá bendir það auðvitað ekki til annars en að eitthvað sé í ólagi. Svona reyna þeir að sefa óróann á mörkuðum, en auka þess í stað á taugaveiklunina til muna. Litlu fjárfestarnir flýta sér í símann.

Nú í febrúarlok var verðbréfamarkaðurinn íslenski búinn að taka út alla hækkun sem hafði verið spáð fyrir árið. Sérstaklega hafði verið passað upp á að sprengja upp verð í fyrirtækjum eins og FL-grúppunni, í von (jafnvel vissu) um að síðar kæmu einhverjir sem væru nógu vitlausir til að kaupa á hinu fáránlega gengi.

Þetta er alþekkt í hlutabréfaviðskiptum og heitir meirafíflskenningin. Byggir á að alltaf sé til meira fífl en maður sjálfur til að kaupa draslið.

En þegar maður heyrir bankastjórana, Halldór og Árna Matt reyna að lægja öldurnar dettur manni bara eitt í hug –

SELJA! SELJA! SELJA!

— — —

Hlutabréfamarkaðir eru miklu andlegri en margur heldur. Það er talað um ísköld viðskipti, en eiginlega hvergi hafa tilfinningarnar meira vægi en einmitt þar. Verðið ræðst að miklu leyti af líðan þeirra sem versla á þeim.

Nú hrannast upp fréttir af því að íslenska efnahagsundrið sé bara eitthvert furðufyrirbæri sem enginn skilur, en alltaf segja Íslendingar það sama – þetta er vitleysa, þeir skilja þetta ekki, þetta er bara ótti og öfund, aðallega í Dönum eða Norðmönnum sem þola ekki velgengni okkar.

Á maður þá fremur að trúa greiningardeildum bankanna hér heima? Ég man ekki betur en að ein þeirra hafi spáð um daginn að gengi krónunnar færi ekki að gefa eftir fyrr en um mitt ár 2007. Ég trúði þessu reyndar ekki betur en svo að ég hljóp út í banka og keypti evrur. Nú hefur gengið lækkað um 15 prósent á fáum dögum.

— — —

Einn greiningardeildarmaðurinn segir í fréttunum í kvöld að viðskipti með hlutabréf séu langhlaup en ekki spretthlaup. Jamm, þannig hefur það einmitt verið á Íslandi. Þeir sem keyptu í Decode eru enn að hlaupa. En þegar ekki er nokkur von til að fyrirtækin geti staðið undir væntingum um ævintýralega arðsemi sem felast í hlutabréfaverðinu – hvers konar hlaup er það þá?

Þetta hangir líka allt saman. Hvað gerist þegar verðið á húsnæði fer að lækka – eftir þá miklu lánaveislu sem hefur verið á þeim markaði?

— — —

En ef þeir í viðskiptalífinu á Íslandi telja að sé svo lítið vit í því sem kemur frá útlendum greiningarfyrirtækjum, bönkum og fjölmiðlum – hví skyldi maður þá taka mark á greiningardeildunum hér þegar þær dengja látlaust yfir okkur orðaleppum eins og "leiðrétting", "þroskamerki", "aðlögun" – þegar margir eru farnir að hugsa "hrun"?

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 1 viku

Ólafur Stephensen: Samkeppnisyfirvöldum kippt út – eins og dómarinn sé tekinn út af og annað liðið ráði reglunum

Ólafur Stephensen: Samkeppnisyfirvöldum kippt út – eins og dómarinn sé tekinn út af og annað liðið ráði reglunum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Brynjar liggur undir feldi og íhugar vistaskipti – „Orðið flak lýsir best líðan minni núna“

Brynjar liggur undir feldi og íhugar vistaskipti – „Orðið flak lýsir best líðan minni núna“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Rasismi sagður á uppleið í Frakklandi – Spennan magnast fyrir seinni umferð þingkosninganna – Ofbeldisverk framin af bæði vinstri og hægri mönnum

Rasismi sagður á uppleið í Frakklandi – Spennan magnast fyrir seinni umferð þingkosninganna – Ofbeldisverk framin af bæði vinstri og hægri mönnum
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Samfélag til að græða á

Sigmundur Ernir skrifar: Samfélag til að græða á