fbpx
Fimmtudagur 18.júlí 2024
Eyjan

Birtum fleiri skopmyndir

Egill Helgason
Mánudaginn 30. janúar 2006 19:58

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Einu viðbrögðin við mótmælum í múslimalöndum gegn teikningunum af Múhammeð spámanni sem birtust í Jótlandspóstinum er að birta fleiri myndir. Út um allt, í blöðum og á vefnum. Hræddir pólitíkusar og bisnessmenn vilja að Jótlandspósturinn biðjist afsökunar en ritstjórar blaðsins hafa neitað hingað til – neyðast til að vera í felum.

Óðir menn brenna danska fánann, hafa í hótunum við norræna borgara, ekki bara Dani, heldur líka Svía og Norðmenn, heimasíða Jótlandspóstsins hefur verið hökkuð. Allt vegna skopmynda sem birtast í ekki sérlega útbreiddu blaði. Maður bíður eftir því að einhver týni lífi vegna þessa máls.

— — —

Þarna er verið að hvetja til ritskoðunar – en fyrst og fremst sjálfsritskoðunar. Líkt og þegar hamast var á Salman Rushdie vegna Söngva Satans er beitt ofbeldi til að kúga fólk til að þegja. Á þeim tíma vildu margir kenna Rushdie sjálfum um, að hann hefði grafið sína eigin gröf – sama viðhorf heyrir maður nú gagnvart danska blaðinu.

Einhverjir segja kannski að ekki megi móðga trúarbrögð annarra þjóða – fjölmenningarsinnar gætu sjálfsagt borið því við – en það er einmitt það sem má samkvæmt okkar vestrænu lýðræðis- og málfrelsishefð. Guðlast er umborið jafnvel þótt það þyki ósmekklegt – við getum ekki breytt því vegna þess að múslimar fara í fýlu.

Kristnin hefur lengi verið skotspónn háðfugla, hún hefur verið tekin sundur í öllum tegundum af gríni, meinlausu og andstyggilegu, allt frá meyfæðingunni til krossdauðans og heilagrar þrenningar – þetta er heil bókmenntagrein sem hefur verið tll allt frá tíma Voltaires.

Þetta er hægt vegna þess að í samfélagi okkar tókst – á löngum tíma og með miklum erfiðismunum – að skilja á milli hins veraldlega sviðs og hins trúarlega. Ekki einu sinni hinir trúuðu vilja snúa aftur til gamla tímans – að minnsta kosti fæstir hér í Evrópu.

Það er einmitt dragbítur á íslömsk samfélög að trúin og pólitíkin er í einum graut. Þess vegna er hægt að efna til slíkra múgæsinga.

— — —

Það er búið að blása þetta skopteikningamál upp úr öllu valdi. Myndirnar sem við sjáum af æstum múg að mótmæla þeim eru í aðra röndina hlægilegar. En auðvitað líka ógnvekjandi, líkt og alltaf þegar maður horfir framan í blint ofstæki. Öfgamennirnir sjá sér hag í að forheimska fólk með þessu. Ríkistjórnir spila með því þetta beinir athyglinni frá ómögulegu stjórnmálaástandi heimafyrir. Það þarf svolítið að spá í hverjir hafa mestan hag af að efna til slíkra æsinga.

Það má alls ekki beygja sig fyrir þessu, heldur er eina andsvarið að birta fleiri svona myndir – ofbeldismönnunum mun vaxa í augum að þurfa að ofsækja þúsundir blaðamanna, ritstjóra og netverja. Þið gætuð til dæmis kópíerað myndirnar sem birtist með þessari grein og sett þær sem víðast.
 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 1 viku

Ólafur Stephensen: Samkeppnisyfirvöldum kippt út – eins og dómarinn sé tekinn út af og annað liðið ráði reglunum

Ólafur Stephensen: Samkeppnisyfirvöldum kippt út – eins og dómarinn sé tekinn út af og annað liðið ráði reglunum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Brynjar liggur undir feldi og íhugar vistaskipti – „Orðið flak lýsir best líðan minni núna“

Brynjar liggur undir feldi og íhugar vistaskipti – „Orðið flak lýsir best líðan minni núna“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Rasismi sagður á uppleið í Frakklandi – Spennan magnast fyrir seinni umferð þingkosninganna – Ofbeldisverk framin af bæði vinstri og hægri mönnum

Rasismi sagður á uppleið í Frakklandi – Spennan magnast fyrir seinni umferð þingkosninganna – Ofbeldisverk framin af bæði vinstri og hægri mönnum
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Samfélag til að græða á

Sigmundur Ernir skrifar: Samfélag til að græða á