fbpx
Miðvikudagur 17.júlí 2024
Eyjan

Skrípaleikur á Siglufirði

Egill Helgason
Mánudaginn 21. mars 2005 00:01

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ótrúlegur var skrípaleikurinn sem var settur á svið á Siglufirði á laugardaginn vegna Héðinsfjarðarganganna. Samgönguráðherrann steig að ofan eins og deus ex machina og færði bæjarbúum gleðitíðindin. Karlakór var látinn syngja – bæjarbúum var ætlað að vegsama ráðherrann. Það á ekki að fara milli mála hver gefandinn er. Meira að segja Pétri Blöndal, samflokksmanni Sturlu, var greinilega ofboðið í sjónvarpsfréttum í gær – sagði að menn ættu að hætta að líta á samgöngur sem einhvers konar landsbyggðarmál.
Pétur sagði að Héðinsfjarðargöngunum hefði verið lofað þegar bankarnir voru seldir. Getur einhver rifjað upp fyrir mér hvers vegna í ósköpunum þurfti setja alltof síðbúna einkavæðingu bankanna í slíkar umbúðir? Hvaða tengsl var eiginlega hægt að finna þarna á milli?
Bæjarstjórinn á Ólafsfirði – kona sem reyndi ítrekað komast á þing fyrir Alþýðubandalagið – var líka í viðtali og sagði að íbúarnir á svæðinu ættu kröfu á að fá þessi göng! Hví þá? Er það vegna þess að Siglufjörður er nú í sama kjördæmi og Ólafsfjörður og Akureyri, en því fyrirkomulagi var komið á við síðustu kjördæmabreytingu? Það eru rök sem maður hefur heyrt.
En öfugt við það sem alþingismenn kunna að halda býtta kjördæmamörk ekki neinu fyrir venjulegt fólk.
— — —
Það er áætlað að um 350 bílar keyri göngin á dag að meðaltali. Mér finnst líklegt að það sé ríflega áætlað – nema þá að bæjarbúar fari á hverjum degi í Bónus á Akureyri. Þetta er svipuð umferð og fer um Hringbrautina á örfáum mínútum. Samt virðist ekki mega ræða það að setja umferð í Reykjavík í göng.
Framkvæmdin kostar 15 milljónir á Siglufirði. Íbúarnir þar eru 1380. Eitt sinn voru þeir yfir 3000. Það verður ekki aftur söltuð síld á Siglufirði. Það er mikiil spurning hvort svona staður eigi yfirleitt framtíð fyrir sér mitt í þeim atvinnuháttabreytingum sem eru að verða – vill ungt fólk búa í afskekktum bæ eins og Siglufirði? Breyta göng einhverju þar um – eða verða þau bara notuð til að komast hraðar burt?
Íbúatalan í kaupstöðum eins og Ísafirði og Vestmannaeyjum er að skríða niður í fjögur þúsund. Á báðum stöðum hefur orðið mikil íbúafækkun á síðustu árum. Þetta tengist því að miklu minni spurn er eftir vinnuafli í sjávarútvegi en áður – og eins því að Íslendingar vilja helst ekki vinna í fiski lengur. En ef menn vilja reka vitræna byggðastefnu væri nær að reyna að reyna að standa vörð um byggðina á slíkum stöðum, en ekki henda peningum hippsum happs í byggðarlög sem eru að dragast upp – hvort sem þeir eru knúðir áfram af miskilinni góðsemi, frjálslegu viðhorfi til meðferðar almannafjár, atkvæðaveiðum eða kjördæmapoti.
— — —
Í gær voru sýndar í sjónvarpinu myndir af því þegar íslenskir þingmenn voru grýttir af börnum landtökumanna í Hebron. Ég kannaðist við þessar slóðir af myndunum, kom þangað fyrir sjö árum. Þarna hefur lítill og ofstækisfullur hópur gyðinga búið sér ból inni í borg sem áður var blómleg – allt vegna þess að í Hebron er sögð vera gröf ættföðurins Abrahams.
Baruch Goldstein, ofstækismaðurinn sem myrti 29 Palestínumenn og særði mörg hundruð í mosku í Hebron 1994, var úr þessum hópi. Goldstein skaut fórnarlömb sín í bakið meðan þau voru við bænir. Það er dæmigert fyrir ástandið þarna að Goldsteins er minnst sem hetju – það eru farnar pílagrímsferðir að gröf hans.
Til að gæta landtökufólksins hafa verið tvö þúsund ísraelskir hermenn í Hebron, gráir fyrir járnum, sitjandi í byssuhreiðrum uppi á þökum. Landtökumennirnir valsa um göturnar með vélbyssur slengdar um öxl, teymandi með sér barnahópa sína – þarna geisar kapphlaup um að fjölga sér sem hraðast. Byggð þeirra er eins og krabbamein í borginni, enda var henni valinn staður inn í miðjum bæ. Á svæðinu í kring ríkir stríðsástand.
Ég gekk þarna upp og niður víglínuna dagpart, talaði við ísraelsku hermennina uppi á þökunum, þoldi það að palestínska öryggislögreglan leitaði á mér, hitti friðargæsluliða frá Noregi sem hristi bara hausinn yfir þessum vitfirringum. Enginn sem kemur á þennan stað hefur sömu skoðun og áður. Það er eins og að vera settur niður í Soweto eða Sharpeville árið 1960 – manni hefði aldrei framar dottið í hug að bera blak af Suður-Afríkustjórn.
— — —
Nú eru feðgarnir Sveinn Eyjólfsson og Eyjólfur Sveinsson búnir að kaupa það ágæta fyrirtæki Tösku og hanskabúðina á Skólavörðustíg. Gárungarnir segja að nú muni þeir í anda fyrri viðskiptahátta skipta búðinni upp og selja hanskadeildina…
Á forsíðu Silfurs Egils

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 1 viku

Ragnar Þór segir þingmann Framsóknarflokksins staðfesta spillingu í landbúnaði – „Allt í boði spilltra stjórnmála“

Ragnar Þór segir þingmann Framsóknarflokksins staðfesta spillingu í landbúnaði – „Allt í boði spilltra stjórnmála“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Ríkisútvarpið telst trauðla menningarstofnun

Björn Jón skrifar: Ríkisútvarpið telst trauðla menningarstofnun
Eyjan
Fyrir 1 viku

Rasismi sagður á uppleið í Frakklandi – Spennan magnast fyrir seinni umferð þingkosninganna – Ofbeldisverk framin af bæði vinstri og hægri mönnum

Rasismi sagður á uppleið í Frakklandi – Spennan magnast fyrir seinni umferð þingkosninganna – Ofbeldisverk framin af bæði vinstri og hægri mönnum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Dagfari: Látum ekki koma fram við okkur eins og búfénað – eini ómöguleikinn er þegar þingið hlýðir ekki þjóðinni

Dagfari: Látum ekki koma fram við okkur eins og búfénað – eini ómöguleikinn er þegar þingið hlýðir ekki þjóðinni
Eyjan
Fyrir 1 viku

Hildur hæðist að Sigmundi og upphlaupi hans í gær – „Það má brosa að því þegar formaðurinn baunar“

Hildur hæðist að Sigmundi og upphlaupi hans í gær – „Það má brosa að því þegar formaðurinn baunar“