fbpx
Þriðjudagur 25.febrúar 2025
Eyjan

Markaðsráðandi fyrirtæki í Silfri

Egill Helgason
Föstudaginn 11. mars 2005 00:01

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Meðal gesta í Silfri Egils á sunnudaginn eru Friðrik G. Friðriksson fararstjóri, Jóhanna Kristjónsdóttir blaðamaður, Gísli Marteinn Baldursson, Karl Th. Birgisson, Agnes Bragadóttir og Sigurður G. Guðjónsson. Fleiri gestir eiga náttúrlega eftir að bætast í þennan hóp.

Friðrik kemur í þáttinn til að ræða samkeppnismál, markaðsráðandi fyrirtæki og vöruverð, en hann hefur erfiða reynslu af því að keppa við stóra aðila á þessum markaði – sagðist meðal annars í grein um daginn vera eini Íslendingurinn sem ekki má kaupa nauðsynjar í Bónusverslunum landsins.

Jóhanna Kristjónsdóttir ræðir lýðræðisþróun í Miðausturlöndum, einkum í Sýrlandi og Líbanon. Er hún yfirleitt til staðar, og ef svo er – er hún þá Bandaríkjunum að þakka? Hvernig stendur á því að 70 þúsund manns mótmæla afskiptum Sýrlendinga af innanlandsmálum í Líbanon, en nokkrum dögum síðar kemur sama hálf milljón Líbana til að mótmæla afskiptum Vesturlanda? Er hætta á meiri ófriður blossi upp á svæðinu?

Fréttir vikunnar verða einnig til umfjöllunar, þá ekki síst ráðning fréttastjóra á Ríkisútvarpinu, hugsanleg yfirtaka fjárfesta á Morgunblaðinu, Reykjavíkurflugvöllur, upplausn í R-listanum, formannsslagur í Samfylkingunni, sala Símans og væntanlega ýmislegt fleira.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Inga Sæland rassskellti hrútspungana í Hádegismóum – örvænting og örþrifaráð einkenna stjórnarandstöðuna

Orðið á götunni: Inga Sæland rassskellti hrútspungana í Hádegismóum – örvænting og örþrifaráð einkenna stjórnarandstöðuna
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Kóngurinn er sestur að í Hvíta húsinu

Kóngurinn er sestur að í Hvíta húsinu
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Inga tók illa í fyrirspurn Hildar – Bergþór með föðurleg ráð

Inga tók illa í fyrirspurn Hildar – Bergþór með föðurleg ráð
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Vilhjálmur Birgisson skrifar: Hrægammarnir í bankakerfinu – græðgi á kostnað almennings

Vilhjálmur Birgisson skrifar: Hrægammarnir í bankakerfinu – græðgi á kostnað almennings
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Áslaug Arna: flokkurinn missti talsamband við fólk – gleymdi launþegum, íþróttum og atvinnulífinu

Orðið á götunni: Áslaug Arna: flokkurinn missti talsamband við fólk – gleymdi launþegum, íþróttum og atvinnulífinu
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Borgarstjórnarviðræður

Óttar Guðmundsson skrifar: Borgarstjórnarviðræður