Meðal gesta í Silfri Egils á sunnudaginn verða Halldór Guðmundsson og Hannes Hólmsteinn Gissurarson. Þeir munu ræða um bækur sínar um Halldór Laxness, en einnig um nýjar upplýsingar sem birtast í Mannlífi og benda til þess að sjálfur J. Edgar Hoover hafi haft afskipti af Halldóri og komið í veg fyrir útgáfu á bókum hans.
Af öðrum gestum sem eru komnir á blað má nefna Steingrím J. Sigfússon og Pétur H. Blöndal.
Meðal umræðuefna í þættinum verður hátt gengi krónunnar og örðugleikar sem hljótast af því, hinn lági dollar og feikileg skuldasöfnun Bandaríkjanna, miklar fjárfestingar íslenskra fyrirtækja og eignatengsl í þeim, klæðaburður á Alþingi og áreiðanlega ýmislegt fleira.
Þátturinn er í opinni dagskrá í hádeginu á sunnudag, hefst klukkan tólf. Hann er svo endursýndur síðla kvölds, en einnig er hægt að sjá hann hér í Veftívíinu.