fbpx
Miðvikudagur 17.júlí 2024
Eyjan

Mun þetta líta svona út?

Egill Helgason
Laugardaginn 23. apríl 2005 00:01

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hvernig kemur háskólinn í Reykjavík til með að líta beint ofan í Reykjavíkurflugvelli? Það er ekki laust við að maður hafi illan grun. Altént á maður von á hinu versta miðað við byggingu Hringbrautarinnar og það sem á að fara að framkvæma á Valssvæðinu. Er virkilega of seint að hætta við það furðulega skipulagsklúður sem nánast enginn vill kannast við?
Spurningin er hvort svæði Háskólans í Reykjavík verður nokkuð annað en bílastæðaflæmi með lágreistum húsum. Verður ekki gert ráð fyrir að allir sem vettlingi geta valdið, kennarar og nemendur, komi akandi á einkabílunum sínum? Kunningi minn sendi mér þessa mynd sem hann tók úr flugvél vestur í Bandaríkjunum – mun þetta kannski líta svona út?

— — —

Arkitekt sem ég er stundum í sambandi við sagðist óttast að þetta myndi líta út eins og svæðið sem ég vinn á – þar á hann við Hálsana með sínu dapurlega iðnaðarhúsnæði. Hann benti á að það væri nánast sérstök fræðigrein hvernig á skipuleggja háskólasvæði. Gætum við ekki byrjað á því að skoða okkur um í Cambridge, Oxford, Lundi og Heidelberg áður en lengra verður haldið? Bara svona til að fá hugmyndir?

— — —

Hins vegar er ótrúlegt rugl að fara að kalla þennan blett "friðland Reykvíkinga". Öskjuhlíðin er ágæt, Nauthólsvíkin sjálf útivistarsvæði, en það er ekki þar með sagt að stórir túnbleðlar allt þar í kring eigi líka að njóta friðunnar – staðir þar sem aldrei sést neinn nema fólk sem er að stelast til að láta hunda skíta.

— — —

Össur og Ingibjörg Sólrún birtu svör um málefnastöðu sína í Fréttablaðinu á föstudaginn. Svörin voru hérumbil nákvæmlega eins; það verður ekki hægt að efna til mikillar umræðu um málefnamun milli þeirra. Á spjallþráðum er mikið verið að pæla í hvort þeirra sé lengra til hægri eða vinstri. Ég treysti mér ekki til að dæma um það.

Nokkurn veginn eini munurinn á svörum þeirra er að Ingibjörg segir að draga eigi úr miðstýringu skólakerfisins (stuðningur við einkaskóla?) og Össur heldur enn í hugmyndir um að fyrna kvótaeign sem Ingibjörg nefnir ekki.

— — —

Útspilið með fjármál þingmanna þykir hafa heppnast vel; það hefur náðst góður spuni á þetta hjá Framsókn. Nú er bara spurning við hvað verður staðið af fyrirheitunum um að birta upplýsingar um fjárhagstengsl þingmanna? Mun þetta gleymast eins og til dæmis reglulegir blaðamannafundir forsætisráðherra?

Þetta er líka svolítið tvíeggjað. Eins og stendur eru þingmenn mjög einsleitur hópur; það er mikið af heimaöldum atvinnumönnum sem ætla sér að vera í pólitík allt sitt líf. Það er þeirra karríer. Þetta ástand er varla til mikilla hagsbóta fyrir þjóðina; hættan er að við sitjum uppi með mýgrút af hugsjónaleysingjum sem hugsa bara um eigin skinn.

Við þurfum að hafa fólk á þingi sem endurspeglar fjölbreyttari svið mannlifsins; líka ríka menn sem jafnvel eiga kvóta og hafa flókin fjárhagstengsl út um allar trissur. Satt að segja get ég ekki séð að þetta sé svo mikið vandamál.

Kristján Jónsson blaðamaður skrifar ágæta grein um þetta í Moggann á fimmtudaginn. Þar segir hann meðal annars:

"En samt get ég ekki stillt mig um að gagnrýna. Það er ekki endilega best að skylda þingmenn til að upplýsa allan almenning um hvert smáatriði í sambandi við eigin fjárhag. Við þurfum aðeins að geta verið sæmilega örugg um að ekki sitji á þingi lygnir fjárglæframenn. Þá er auðvitað átt við einkahagi þeirra. Erfitt verður að hindra bestu menn í að stuðla að ríkisreknum glæfrum sem allt of margir kjósendur virðast leggja blessun sína yfir.

Oft hefur verið bent á þá ósvinnu að hér á skuli skattskrá vera lögð fram á almannafæri og öllum gefið færi á að rannsaka einkahagi annarra. Þetta er til að koma í veg fyrir að menn svíki undan skatti, segja menn fjálglega, þetta er aðhald af hálfu almennings. Hann á að fylgjast með því að þeir sem lifa eins og greifar geti ekki sleppt því að greiða skatta og látið duga að borga það sem einu sinni var kallað vinnukonuútsvar.

En þá gleymist að við viljum líka samfélag þar sem menn geta lifað í friði ef þeir brjóta ekki lögin. Hvers vegna að gera ráð fyrir því að allir séu glæpamenn? "

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 1 viku

Ragnar Þór segir þingmann Framsóknarflokksins staðfesta spillingu í landbúnaði – „Allt í boði spilltra stjórnmála“

Ragnar Þór segir þingmann Framsóknarflokksins staðfesta spillingu í landbúnaði – „Allt í boði spilltra stjórnmála“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Ríkisútvarpið telst trauðla menningarstofnun

Björn Jón skrifar: Ríkisútvarpið telst trauðla menningarstofnun
Eyjan
Fyrir 1 viku

Rasismi sagður á uppleið í Frakklandi – Spennan magnast fyrir seinni umferð þingkosninganna – Ofbeldisverk framin af bæði vinstri og hægri mönnum

Rasismi sagður á uppleið í Frakklandi – Spennan magnast fyrir seinni umferð þingkosninganna – Ofbeldisverk framin af bæði vinstri og hægri mönnum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Dagfari: Látum ekki koma fram við okkur eins og búfénað – eini ómöguleikinn er þegar þingið hlýðir ekki þjóðinni

Dagfari: Látum ekki koma fram við okkur eins og búfénað – eini ómöguleikinn er þegar þingið hlýðir ekki þjóðinni
Eyjan
Fyrir 1 viku

Hildur hæðist að Sigmundi og upphlaupi hans í gær – „Það má brosa að því þegar formaðurinn baunar“

Hildur hæðist að Sigmundi og upphlaupi hans í gær – „Það má brosa að því þegar formaðurinn baunar“