fbpx
Miðvikudagur 17.júlí 2024
Eyjan

Flatir skattar og Untergang

Egill Helgason
Föstudaginn 22. apríl 2005 00:01

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Silfur Egils á sunnudaginn er farið að taka á sig mynd. Meðal þess sem verður fjallað um er flatur skattur en hið virta tímarit The Economist helgaði honum forsíðu sína í síðustu viku. Þessi hugmynd hefur rutt sér mjög til rúms í ríkjum Austur-Evrópu. Ýmsir hafa tekið þessu fagnandi, þar á meðal vefritið Vef-Þjóðviljinn sem skrifaði fyrir fáum dögum:

„Margs konar röksemdir eru fyrir því að taka upp flatan skatt. Nefna má að innheimtan verður mun einfaldari og ódýrari og undanskot minnka, sér í lagi ef skatturinn er nægilega lágur til að skattgreiðendum þykir hann ekki eins ranglátur og ella. Þetta getur sparað háar fjárhæðir bæði í beinum útgjöldum  hins opinbera vegna skattheimtumanna og einnig vegna kostnaðar sem einstaklingar verða fyrir vegna flókins skattkerfis. Með einföldu flötu skattkerfi þar sem ekki eru óteljandi undanþágur verður minni sóun en í þeim skattkerfum sem algengust eru og hagkerfið verður skilvirkara og betra. Þetta skiptir máli, en þó skiptir ekki minna máli að flatur skattur á allar tekjur er ekki eins ranglátur og stighækkandi skattur, þar sem flatur skattur felur í sér að allir greiða sama hlutfall launa sinna í skatt. Þeir sem meiri tekjur hafa greiða þó vitaskuld meiri skatta en þeir sem minni tekjur hafa, en hlutfallið er það sama.“

Í þættinum verður einnig fjallað um kvikmyndina Der Untergang sem nú er sýnd á kvikmyndahátíð við mikla aðsókn. Myndin segir frá síðustu dögum Adolfs Hitlers og lífinu í byrgi hans í Berlín.

Þá verður rætt um frumvarp til breytinga á fjarskiptalögum sem sumir segja að feli í sér stórkostlegar persónunjósnir, meðal annarra Andri Óttarsson, einn gestanna í þættinum, en hann kallar þetta „Versta frumvarp ársins“ í grein á Deiglunni.

Af öðrum málum sem bera vafalítið á góma má nefna tíu ára afmæli ríkisstjórnar þeirra Halldórs og Davíðs, flugvöllinn og uppbyggingu í Vatnsmýri, hugmyndir um að opinbera fjármálatengsl stjórnmálamanna og formannskjörið í Samfylkingunni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 1 viku

Ragnar Þór segir þingmann Framsóknarflokksins staðfesta spillingu í landbúnaði – „Allt í boði spilltra stjórnmála“

Ragnar Þór segir þingmann Framsóknarflokksins staðfesta spillingu í landbúnaði – „Allt í boði spilltra stjórnmála“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Ríkisútvarpið telst trauðla menningarstofnun

Björn Jón skrifar: Ríkisútvarpið telst trauðla menningarstofnun
Eyjan
Fyrir 1 viku

Rasismi sagður á uppleið í Frakklandi – Spennan magnast fyrir seinni umferð þingkosninganna – Ofbeldisverk framin af bæði vinstri og hægri mönnum

Rasismi sagður á uppleið í Frakklandi – Spennan magnast fyrir seinni umferð þingkosninganna – Ofbeldisverk framin af bæði vinstri og hægri mönnum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Dagfari: Látum ekki koma fram við okkur eins og búfénað – eini ómöguleikinn er þegar þingið hlýðir ekki þjóðinni

Dagfari: Látum ekki koma fram við okkur eins og búfénað – eini ómöguleikinn er þegar þingið hlýðir ekki þjóðinni
Eyjan
Fyrir 1 viku

Hildur hæðist að Sigmundi og upphlaupi hans í gær – „Það má brosa að því þegar formaðurinn baunar“

Hildur hæðist að Sigmundi og upphlaupi hans í gær – „Það má brosa að því þegar formaðurinn baunar“